Fótbolti

„Hélt stuðnings­mönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir á fullri ferð með íslenska landsliðinu.
Sveindís Jane Jónsdóttir á fullri ferð með íslenska landsliðinu. Vísir/Diego

Íslenska knattspyrnukonan Sveindís Jane Jónsdóttir endaði deildarkeppnina í NWSL-deildinni með marki og stoðsendingu í sigri í lokaleiknum og kórónaði með því besta tímabil sem íslenskur leikmaður hefur átt í þessari öflugu bandarísku atvinnumannadeild.

Frammistaða íslenska framherjans hefur ekki farið fram hjá neinum sem fylgjast með deildinni. Hún setti ekki aðeins íslenskt markamet í deildinni með tíu mörkum heldur einnig félagsmet hjá Angel City.

Meðal þeirra sem hrósa Suðurnesjamærinni er Versus-miðillinn sem henti í lofræðu um þessa 25 ára knattspyrnukonu.

„Sveindís Jónsdóttir. Hneigðu þig. Eitt og hálft ár með Angel City og SJ hefur svo sannarlega unnið sér inn vængina. Tíu mörk. Fjórar stoðsendingar. Leiddi liðið sitt í sóknartölfræði,“ byrjaði pistillinn.

„Gerði varnarmönnum lífið leitt í leiðinni. Hélt stuðningsmönnum Angel City í sjöunda himni allt árið. Það besta sem Ísland á. Engin furða að hún sé svalasti skotmaðurinn,“ segir í pistlinum og svo var haldið áfram:

„Var í þrjú ár að fara á kostum í Wolfsburg. Því kemur ekki á óvart að hún sé með alvöru keppnisskap. Varnarmenn fóru með bænir og óskuðu sér í hvert sinn sem þeir mættu englunum. Kom til La-La-Lands og er nú vel á veg komin með að tryggja liði sínu Hollywood-endi.“

Næst á dagskrá er úrslitakeppnin þar sem Angel City mætir Kansas City Current í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitunum. Leikurinn fer fram sunnudaginn 7. nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×