Fótbolti

Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lög­reglu

Sindri Sverrisson skrifar
Harry Kane hlaut Gullboltann en það stóð þó ansi tæpt því Kylian Mbappé varð rétt á eftir honum.
Harry Kane hlaut Gullboltann en það stóð þó ansi tæpt því Kylian Mbappé varð rétt á eftir honum. Getty/Jeff Spicer

Franska lögreglan hefur hafið rannsókn á veðmálasvindli í tengslum við verðlaunahátíðina Ballon d'Or, eða Gullboltann, þar sem grunur leikur á að innherjaupplýsingar um hverjir yrðu í fimm efstu sætum karla hafi skilað óprúttnum aðilum háum fjárhæðum.

Samkvæmt grein The Athletic í dag eru til rannsóknar veðmál á 12 reikningum á spámarkaðssíðunni Polymarket.

Veðmálin snerust um að þeir Harry Kane, Kylian Mbappé, Lamine Yamal, Rodri og Lionel Messi yrðu í fimm efstu sætunum í kjörinu um Gullboltann og sú varð raunin.

Franski miðillinn Upside greindi frá því að 250.000 evrur hefðu verið lagðar undir og að hagnaðurinn hefði numið 200.000 evrum eða jafnvirði rúmlega 27 milljóna króna.

Mikil leynd hvílir ávallt yfir kjörinu um Gullboltann og skipuleggjendur hátíðarinnar, miðillinn France Football, leggja mikið upp úr því að ekkert spyrjist út fyrir athöfn. The Athletic hefur heimildir fyrir því að France Football hafi verið varað við óvenjulegum veðmálum í aðdraganda hófsins og því útlit fyrir að upplýsingum um niðurstöðuna hafi með einhverjum hætti verið lekið.

France Football hóf sína eigin rannsókn og lét auk þess frönsku lögregluna vita af málinu.

„Heilindi Ballon d’Or eru algjört forgangsatriði hjá France Football,“ sagði talsmaður Ballon d’Or í samtali við The Athletic. 

„Við viljum ítreka að sigurvegarinn er valinn í óháðri kosningu.

Verið viss um að við tökum þessar ásakanir um leka á niðurstöðum og hugsanlega sviksamleg veðmál mjög alvarlega. Rannsókn er hafin til að leiða staðreyndir í ljós og skera úr um hugsanlega ábyrgð.

Við erum að leggja fram kæru hjá viðeigandi lögregluyfirvöldum. Þar sem rannsókn stendur enn yfir er ekki hægt að greina frá frekari upplýsingum að svo stöddu,“ sagði talsmaðurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×