Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Aron Guðmundsson skrifar 21. júní 2026 08:02 Doku í landsleik með Belgíu Joris Verwijst/Soccrates/Getty Images Jeremy Doku, landsliðsmaður Belgíu í fótbolta, hefur verið gagnrýndur fyrir að ætla halda af HM til þess að verða viðstaddur fæðingu frumburðar síns og eiginkonunnar Shireen.
Settur dagur hjá Shireen er í annari viku júlímánaðar og standist hann er möguleiki á því að Belgía verði á svipuðum tíma að spila mikilvægan leik í átta liða úrslitum HM. Doku, sem er leikmaður Manchester City á Englandi, er einn af lykilmönnum belgíska landsliðsins og verði raunin sú að Belgía verði enn með á HM um það leiti og eiginkona hans á að fæða barnið ætlar Doku sér ekki að missa af fæðingu frumburðarins. Í augum flestra er það eðlilegt af hálfu Doku að vilja það. Hins vegar eru ekki allir á sama máli og France Pierron, þulur hjá franska miðlinum L'Equipe, gagnrýnir fyrirætlanir Belgans harðlega. Pierron segir það ógeðfellt af Doku að ætla yfirgefa landslið sitt til þess að verða viðstaddur fæðinguna. Faðirinn sé gagnslaus þegar að um fæðingu sé að ræða. Auðvitað gæti eiginkona Doku farið af stað á hverri stundu og Doku, sem er staddur í Bandaríkjunum með landsliði Belgíu, þá ekki náð í tæka tíð fyrir fæðingu. Verði hins vegar möguleiki á að ná fæðingunni ætlar hann að halda til eiginkonu sinnar og snúa síðan aftur á HM eftir að hafa varið tíma með henni og frumburðinum. Belgía gerði jafntefli við Egyptaland í fyrsta leik sínum í riðlakeppni HM á dögunum og mun á morgun mæta Íran á Los Angeles leikvanginum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég reyni bara að njóta fótboltans og lífsins“ Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Sjá meira