Göngu­ferð í garðinum hjá Evrópu­meisturunum

Aron Guðmundsson skrifar
Lamine Yamal skoraði eitt marka Spánar í dag.
Lamine Yamal skoraði eitt marka Spánar í dag. Vísir/Getty

Evrópumeistarar Spánar eru mættir af alvöru til leiks á HM í fótbolta og í dag sóttu þeir sinn fyrsta sigur á mótinu gegn Sádi-Arabíu. Lokatölur urðu 4-0 sigur Spánverja. 

Sigur Evrópumeistaranna var aldrei í hættu í dag. Ungstirnið Lamine Yamal kom Spánverjum yfir með sínu fyrsta marki á HM á 10. mínútu leiksins.

Röðin var síðan komin að liðsfélaga Orra Steins Óskarssonar hjá Real Sociedad. Mikel Oyarzabal. 

Hann skoraði næstu tvö mörk Spánverja og stóðu leikar 3-0 í hálfleik. 

Al Tambakti varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark snemma í seinni hálfleik og reyndist það síðasta mark leiksins.

Lokatölur 4-0 sigur Spánverja sem eru með fjögur stig að loknum fyrstu tveimur leikjum sínum H-riðli HM og verma toppsætið. Sádi Arabía er með eitt stig líkt og Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjar sem mætast í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira