Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Sindri Sverrisson skrifar 21. júní 2026 09:04 Eloy Room sló í gegn með frammistöðu sinni gegn Ekvador í nótt. Getty/Charlotte Wilson Curacao er núna orðin fámennasta þjóðin sem náð hefur í stig á HM, eftir markalaust jafntefli við Ekvador í E-riðli í nótt. Túnis er úr leik eftir að hafa aftur steinlegið, 4-0, þrátt fyrir að hafa ráðið nýjan þjálfara fyrir leik sinn við Japan.
Curacao fékk á sig sjö mörk og tapaði 7-1 gegn Þýskalandi í fyrsta leik á HM og hafa ýmsir spurt sig hvort liðið ætti nokkuð erindi á svona stórmót. Í nótt sló liðið hins vegar met Íslands með því að verða fámennasta þjóðin til að fá stig á HM og markvörðurinn Eloy Room á stærstan þátt í því. Room, sem er 37 ára gamall markvörður Miami FC, varði frá Enner Valencia í dauðafæri í upphafi leiks og hafði í lok leiks varið heil 15 skot. A remarkable and record-equalling performance ⭐⭐⭐⭐⭐🧤 Eloy Room, the 37-year-old Miami FC keeper, made 15 saves against Ecuador to secure a goalless draw - World Cup debutants Curacao's first-ever point in the tournament🧤 Since records began in 1966, no goalkeeper has… pic.twitter.com/eOygQjaln4— Match of the Day (@BBCMOTD) June 21, 2026 Það hefur aðeins einu sinni gerst áður í leik á HM, frá því farið var að telja markvörslur á HM 1966, en Tim Howard varði jafnmörg skot fyrir Bandaríkin gegn Belgíu árið 2014, samkvæmt frétt BBC. Sá leikur var hins vegar framlengdur og Howard fékk á sig tvö mörk í framlengingunni. 👏🏼🇨🇼 Room dedicated the win to Jairzinho, the goalkeeper from Curaçao passed away 7 years ago. ❤️🩹 pic.twitter.com/eCD55JYK60— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 21, 2026 Room grínaðist með það sjálfur eftir leik að hann hefði eflaust setið sveittur heima ef hann hefði fylgst með leiknum sjálfur, og að kannski væri réttast að hann fengi styttu af sér í Curacao. Ekvador og Curacao eru nú með eitt stig hvort en Þýskaland efst í E-riðli með sex stig og Fílabeinsströndin er með þrjú. Daichi Kamada er ennþá með sama gamla númerið. Hann skoraði fyrsta mark Japana í nótt, strax á fjórðu mínútu.Getty/David Ramos Stærsti sigur asísks landsliðs Japan vann svo stærsta sigur sem asískt landslið hefur unnið á HM, þegar liðið vann 4-0 gegn Túnis. Túnisbúar ráku landsliðsþjálfara sinn eftir 5-1 tap gegn Svíþjóð í fyrsta leik en nýi þjálfarinn, Hervé Renard, náði ekki að laga leik liðsins og er nú ljóst að Túnis endar á botni F-riðils, þó lokaumferðin sé eftir. Daichi Kamada kom Japan yfir strax á 4. mínútu, Ayase Ueda skoraði tvö mörk og Junya Ito eitt. Holland og Japan eru því jöfn með fjögur stig á toppi F-riðils, Svíþjóð er með þrjú stig og Túnis án stiga. Í lokaumferðinni mætast Japan og Svíþjóð en Holland mætir Túnis.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég reyni bara að njóta fótboltans og lífsins“ Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Sjá meira