Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júní 2026 15:01 Bode Miller vann sex verðlaun á Ólympíuleikunum, þar á meðal gull í samanlögðu á leikunum í Vancouver 2010. Getty/Alexander Hassenstein Bandaríska lögreglan fann að sögn hass og ofskynjunarsveppi í bílnum þegar fyrrverandi alpastjarnan Bode Miller var stöðvuð nýlega. Miller segist sjálfur vera saklaus.
Það var fyrr í júní sem alpastjarnan var handtekin í bandaríska fylkinu Idaho fyrir nokkur fíkniefnalagabrot. Miller var síðar sleppt gegn tryggingu upp á tæplega 50.000 norskar krónur. Bandarískir miðlar eins og ESPN, TMZ og ABC fjalla allir um atvikið. Olympian Bode Miller Caught With Magic Mushrooms During Drug Arrest https://t.co/wWx9pkJFhs— TMZ (@TMZ) June 23, 2026 Miller þarf nú að mæta á undirbúningsfund fyrir réttarhöld í lok júlí. Aðfaranótt miðvikudags birti hann færslu á Instagram þar sem atburðarásinni er lýst á þennan hátt: „Lögreglan stöðvaði mig í tengslum við framúrakstur á hraðbrautinni. Vinurinn sem ég ferðaðist með var með kannabis og kannabispípu sem ég vissi ekki af. Við sýndum lögreglunni fulla samvinnu. Ég vona að málið verði fellt niður þegar allar staðreyndir eru komnar á borðið,“ sagði Miller. Á Instagram-síðu sinni minnist Miller ekkert á ofskynjunarsveppina, oft kallaða „töfrasveppi“, sem hann á samkvæmt fjölmiðlum einnig að hafa haft í vörslu sinni. ABC byggir upplýsingar sínar á dómskjölum. Bode Miller hefur unnið sex Ólympíuverðlaun. Hann vann sín fyrstu árið 2002 og þau síðustu árið 2014. Alpastjarnan hefur einnig unnið fern gull á heimsmeistaramótum og tvo heildarsigra í heimsbikarnum. Bandaríkjamaðurinn lagði skíðaferilinn á hilluna árið 2017. Olympic gold medalist alpine skier Bode Miller was arrested earlier this month on misdemeanor drug charges. @TrevorLAult reports. pic.twitter.com/TKE2FXg90W— Good Morning America (@GMA) June 24, 2026
Vetrarólympíuleikar 2014 í Sochi Skíðaíþróttir Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Mun Conte taka við Manchester United? Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía | Hvað gera strákarnir hans Zidane? Selfoss missir mikið efni Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Gylfi búinn að vera rifbeinsbrotinn í þrjár vikur Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Dýrmætur sigur HK-inga Sjá meira