Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 25. júní 2026 08:03 Kristrún Frostadóttir segir í góðu lagi að stundum sé gert grín að henni fyrir sleggjuinnslagið fræga sem Samfylkingin birti í aðdraganda síðustu þingkosninga. vísir/vilhelm Forsætisráðherra segist ekki sjá eftir framsetningu á sleggjunni umtöluðu í aðdraganda síðustu þingkosninga. Um langtímaverkefni sé að ræða sem taki tíma. „
Hvað ætlum við að gera við þessa vexti?“ spurði Kristján Þórður Snæbjarnarson, þáverandi formaður Rafiðnaðarsambandsins, í auglýsingu frá Samfylkingunni sem birt var í aðdraganda síðustu þingkosninga og má sjá hér að neðan. Negla niður vextina Þar bað Kristrún Frostadóttir hann um að rétta sér sleggju. Sést hún næst, eins og frægt er orðið, berja niður steypuklump sem á stendur: 9 prósent og er þar vísað í vexti. „Svona ætlum við að negla niður þessa vexti,“ sagði Kristrún. Í dag, rúmum átján mánuðum síðar standa vextir í 7,75 prósentum og verður hver og einn að dæma fyrir sig hvort að slíkur árangur sé í samræmi við orðalagið að: „Negla niður vextina.“ Sleggjan sé langtímamarkmið Það getur verið svolítið hættulegt að nota myndmál í auglýsingum fyrir kosningar. Sérðu eftir því að hafa tekið svona sterkt til orða, að nú ætti að berja niður vexti og verðbólgu með sleggju? Sérstaklega í ljósi þess að vextir eru enn of háir og verðbólga of mikil? „Nei ég geri það ekki. Auðvitað var þetta ákveðinn léttleiki í aðdraganda kosninga á mjög alvarlegu máli. Það liggur alveg fyrir að allt sem við erum að gera núna vinnur að því að skapa aðstæður fyrir lækkun verðbólgu og vaxta. Þetta er hins vegar langtímamarkmið.“ Rætt var við Kristrúnu Frostadóttur í Ísland í dag á þriðjudaginn um önnur skyld mál. Viðtalið má finna í heild sinni hér að neðan. Kristrún segir strúktúrvanda í íslensku efnahagslífi. „Það hefur verið mikill hiti í kerfinu í langan tíma. Maður sér það líka þegar maður kemur inn og fær að sjá alla reikninga hjá ríkinu, hvað það er á sumum stöðum mikið stjórnleysi og agaleysi þegar kemur að nýtingu ríkisútgjalda og ríkisfjármagnsins. Þarna er ekki við hinn almenna opinbera starfsmann að sakast. Heldur hefur verið svigrúm hjá stjórnendum, hjá ákveðnum opinberum stofnunum til að eyða um efni fram án þess að það hafi afleiðingar.“ Þetta séu þættir sem taki tíma að snúa við. „Það breytir því samt ekki að þetta verður ekki lagað nema hagvaxtagetan breytist. Þess vegna þurfum við að klára orkumálin, fjölga römmunum sem við afgreiðum í þinginu, einfalda áfram leyfisveitingaferli í orkumálum og koma styrkari stjórn á eftirlitsumhverfi fyrirtækja. Svo erum við líka að gefa í þegar kemur að vel völdum velferðarmálum eins og á sviði heilbrigðisútgjalda.“ Ferlið muni taka tíma Feta þurfi skynsama slóð hvað málin varðar. „Við höfum séð húsnæðisverð lækka að raunvirði. Við höfum séð verðbólgu heilt yfir lægri en á síðasta kjörtímabili og vextir eru líka lægri en á síðasta kjörtímabili þannig við erum að fara í rétta átt en þetta mun taka smá tíma.“
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira