„Ég held að við séum á heimleið“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2026 06:53 Neymar Jr. og Vinicius Junior fagna sigri Brasilíumanna en Skotar sitja niðurbrotnir á vellinum. Getty/Megan Briggs Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skotlands, óttast að lið hans sé á heimleið eftir 3-0 tap gegn Brasilíu í gær en úrslitin þýða að möguleikar þeirra á að komast í útsláttarkeppni heimsmeistaramótsins eru í lausu lofti.
Lið Clarke er með þrjú stig eftir þrjá leiki í riðlakeppninni. Þeir hófu leik með 1-0 sigri á Haítí, en töpuðu svo 1-0 fyrir Marokkó og svo Brasilíu á miðvikudag þar sem Vinícius Júnior skoraði tvö mörk og Matheus Cunha bætti einu við. „Við gerðum okkur þetta erfitt fyrir, það er bara þannig. Við gáfum þeim mörkin, við gáfum þeim leikinn sem þeir vildu. Þetta eru vonbrigði,“ sagði Steve Clarke við breska ríkisútvarpið eftir leik. Skotarnir þurfa nú að bíða eftir úrslitum annarra leikja til að sjá hvort þeir komist í útsláttarkeppnina sem eitt af átta bestu liðunum í þriðja sæti. Clarke var sýnilega svekktur með tapið og harmaði mistökin sem leiddu til þriggja marka Brasilíu. „Við sköpuðum færi en það var ekki nóg. Við skulum vera hreinskilin, betra liðið vann,“ sagði Clarke. „Fyrstu fjórar eða fimm mínúturnar spiluðum við boltanum vel en gerðum svo mistök. Þú getur ekki gert það á þessu stigi því þá ertu kominn í vörn og kvöldið verður langt,“ sagði Clarke. „Ég er nokkuð viss um að við séum á heimleið. Aðeins Skotland getur unnið fyrsta leik sem hægt var að vinna og svo fengið fimmta og sjötta besta lið heims,“ sagði Clarke og er þar að tala um Brasilíu og Marokkó.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Sjá meira