Lét menn heyra það á HM: „Þetta er smá sorglegt“ Aron Guðmundsson skrifar 26. júní 2026 12:03 Mauricio Pochettino, landsliðþjálfari Bandaríkjanna. Vísir/Getty Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, var allt annað en sáttur með spurningar sem hann fékk frá blaðamönnum eftir að hans menn töpuðu fyrir Tyrkjum á HM í fótbolta í nótt. Bandaríkin unnu sinn riðil á HM en Tyrkir eru á leið heim.
Með því að toppa D-riðilinn á HM eru Bandaríkin, sem eru einn af gestgjöfum HM í þetta sinn, að fara mæta Bosníu & Hersegóvínu í 32-liða úrslitum mótsins. Bandaríkin höfðu nú þegar fyrir leikinn gegn Tyrklandi í nótt tryggt sér toppsæti riðilsins og Tyrkirnir vissu fyrir víst að þeir væru á leið heim. Pochettino gat því leyft sér að gera breytingar á byrjunarliði sínu milli leikja og hvíla leikmenn. 3-2 tapið vakti hins vegar upp spurningar hjá blaðamönnum varðandi frammistöðu liðsins i leiknum, skriðþungann sem liðið hefði geta tekið með sér inn í 32-liða úrslitin með sigri sem og horfurnar fyrir útsláttarkeppnina. Það fór ekki vel í Pochettino. 🗣️ "That is a little bit sad."Mauricio Pochettino was frustrated with journalists for not congratulating USA for topping their group 😬 pic.twitter.com/C4IB21cSGC— Match of the Day (@BBCMOTD) June 26, 2026 „Það getur ekki verið að Tyrkir fagni þremur stigum, Ástralía fagni því að komast áfram, Paragvæ fagni því að komast áfram og fyrir ykkur að óska okkur ekki til hamingju með að sigra riðilinn. Það er sorglegt.“ Sigurmark Tyrkja kom seint í uppbótartíma venjulegst leiktíma í seinni hálfleik. Sannkallað flautumark með síðustu spyrnu leiksins. Pochettino benti á það nokkrum sinnum á blaðamannafundi sínum eftir leik að Bandaríkin hefðu nú þegar fyrir leikinn gegn Tyrkjum verið búnir að tryggja sér toppsæti riðilsins. „Ég er ánægður en er ekki að sýn það vegna þess að spurningarnar sem ég er að fá hér eru smá skrítnar. En ég er ánægður, leikmennirnir eru ánægðir vegna þess að við enduðum í fyrsta sæti. Ég er smá hissa á þessu. Er stemningin þannig að við séum á leið heim í kvöld en að Tyrkirnir haldi áfram á HM?“
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Kevin Keegan látinn Enski boltinn Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Sport Fleiri fréttir Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu „Þetta lítur bara illa út“ Svaf ekki fyrir fagnaðarlátum á Spáni Segir búið að ákveða að það verði 64 þjóðir á næsta HM Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Sjá meira