Danny Glover með Alzheimer Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. júlí 2026 16:10 Danny Glover á farsælan Hollywood-feril að baki og hefur leikið í fjölda stórmynda. Getty Bandaríski leikarinn Danny Glover greindi frá því í dag að hann væri kominn með Alzheimer-sjúkdóm og hefði glímt við hann síðustu þrjú ár. Hann segist byrjaður að finna fyrir áhrifum sjúkdómsins á talanda sinn, hreyfingu og minningar.
Hinn 79 ára Glover, sem er þekktastur fyrir að leika lögguna Roger Murtaugh í Lethal Weapon-seríunni, greindi frá Alzheimer-greiningunni í viðtali við Lester Holt í The Today Show á NBC fyrr í dag. Glover segist eins og er geta lifað eðlilega með sjúkdómnum en að eftir því sem honum vindi fram muni líf hans breytast til muna. „Það eru augnablik sem þú manst eftir sem staðfesta fyrir þér þá staðreynd að þú manst enn hluti. Og það eru ákveðin augnablik sem ég mun aldrei gleyma,“ sagði Glover. Alzheimer-sjúkdómur er ólæknandi sjúkdómur í heila sem veldur dauða taugafruma. Fyrstu einkenni sjúkdómsins eru áhrif á minni, fyrst um sinn áhrif á skammtímaminni en síðar á langtímaminni. Sjúkdómseinkenni fara jafnan hægt af stað en geta ágerst hratt og hafa þá mikil áhrif á daglegt líf fólks. Leikarinn ræddi einnig við tímaritið People um það hvernig honum hefur gengið að takast á við sjúkdóminn. „Ég á enn dóttur mína, ég á vini,“ sagði leikarinn við People. „Ég vil bara segja, lífið heldur áfram.“ Glover er þekktastur fyrir Tvo á toppnum. Mandisa Glover, dóttir leikarans, segir föður sinn misvel áttaðan eftir að hafa greinst með sjúkdóminn. Það væri mikilvægt fyrir hann að hafa stjórn á eigin sögu og lífi sínu, þess vegna hefði hann greint frá greiningunni. „Það er mjög mikilvægt. Og tíminn er núna. Hvaða tími er betri en akkúrat núna til að tjá sig um þetta?“ sagði dóttirin. Glover segist ekki finna fyrir því að komið sé að endalokum lífs hans. „Það er enn verk að vinna,“ sagði leikarinn sem fagnar áttatíu ára afmæli 22. júlí næstkomandi. Danny Glover hefur leikið í rúmlega hundrað kvikmyndum á ferli sínum, þar á meðal fjórum Lethal Weapon-myndum, Predator 2, og The Color Purple. Auk þess hefur hann getið sér gott orð fyrir þáttöku sína í réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum og hinum ýmsu málefnum víða um heim.
Hollywood Bandaríkin Heilbrigðismál Bíó og sjónvarp Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Fleiri fréttir Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira