Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2026 19:47 Harry Kane hefur skorað fimm mörk á HM. Aðeins Lionel Messi og Kylian Mbappé hafa skorað meira. getty/Jose Breton Harry Kane bjargaði andliti enska fótboltalandsliðsins þegar það mætti Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í dag. Landsliðsþjálfari Englands hrósaði honum eftir leikinn.
England lenti undir strax á 7. mínútu í Atlanta í dag þegar Brian Cipenga skoraði fyrir Kongó. Staðan var 0-1 fyrir Kongómenn allt þar til á 75. mínútu þegar Kane jafnaði með skallamarki. Ellefu mínútum síðar tryggði hann Englendingum svo sigurinn með frábæru skoti. Lokatölur 2-1, Englandi í vil. „Þetta er það sem við búumst við af honum. Ég held að þetta sé það sem hann býst við af sjálfum sér,“ sagði Thomas Tuchel, þjálfari enska liðsins, eftir leikinn í dag. „Erfiðir og jafnir leikir. Harry er hérna til að klára þá. Hann er frábær.“ Skiptingar Tuchels gáfu góða raun í dag en einn af þeim sem komu inn á, Anthony Gordon, lagði bæði mörk Englands upp. „Allt mótið hefur orkan og liðsandinn verið fyrsta flokks. Allir eru meðvitaðir um hvar við erum í keppninni og hvað þarf til. Ég held að öllum líði vel þegar þeir spila eða eru valdir til að klára leiki vegna þess sem andinn í hópnum gerir fyrir leikmennina,“ sagði Tuchel. Næsti leikur Englands er gegn heimaliði Mexíkó á Azteca-leikvanginum aðfaranótt mánudags.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Fótbolti Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Sveindís missti af prinsessuleiknum Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Sjá meira