Verið er að selja miða á 16-liða úrslitin á margar milljónir Andri Broddason skrifar 3. júlí 2026 18:01 Harry Kane tryggði England í 16-liða úrslit HM í fótbolta en miðar á 16-liða úrslitin eru orðnir mjög dýrir. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images Miðar á leik Mexíkó og Englands í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta eru búnir að hækka margfalt í verði. Verið er að selja þá á formlegum endursöluvef á vegum Fifa.
Mikil spenna er fyrir leik Mexíkó og Englands í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Eftirspurnin eftir miðum á leikinn er það mikil að verið er að selja miða á margfalt hærra verði en þeir voru keyptir á. Dýrustu miðarnir á endursöluvefnum voru keyptir á 460 pund eða 77 þúsund krónur og eru þetta fjórir miðar saman. Nú er verið að selja hvorn miðann á tæp 23 þúsund pund hvorn eða á tæpar fjórar milljónir. Auk þess sem verðið á miðunum er búið að hækka í himinháar upphæðir þarf kaupandi endursölumiðanna að borga 15 prósent af miðaverðinu til Fifa. Á dýrustu miðunum er það um 760 þúsund sem bætast ofan á miðaverðið. Seljandinn þarf einnig að greiða sín 15 prósent til Fifa en það skilur seljandann samt eftir í miklum gróða. Ódýrustu miðarnir sem hægt er að kaupa eru í kringum tvö þúsund og sex hundruð pund eða um rúmlega fjögur hundruð þúsund krónur. Það er tólfföld hækkun á miðanum en hann var upprunalega keyptur á 224 pund eða 38 þúsund krónur. Þeir stuðningsmenn Englands sem keyptu upphaflegu miðana gátu ekki keypt þá fyrr en sæti Englands í 16-liða úrslitum var tryggt. Þeir fóru því einungis í sölu eftir að England vann Kongó í 32-liða úrslitum síðasta miðvikudag.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Fótbolti Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Íslenski boltinn Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Sveindís missti af prinsessuleiknum Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Sjá meira