Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Kjartan Kjartansson skrifar 6. júlí 2026 13:42 Neyðarstarfsmenn bera mann sem særðist í harðri loftárás Rússa á Kænugarð í nótt. AP/Danylo Antoniuk Alvarlegur skortur á flugskeytum í bandarískt loftvarnarkerfi leiddi til þess að Úkraínumenn gátu ekki stöðvað neina þeirra rúmlega tuttugu skotflauga sem Rússar skutu á Kænugarð í nótt. Tæplega tuttugu manns létust í árásum næturinnar.
Úkraínski herinn segir að sér hafi tekist að stöðva stýriflaugar og sprengjudróna sem Rússar sendu í nótt. Skotflaugarnar hafi þeir ekki ráðið við. Til þess skorti herinn svokölluð PAC-3-flugskeyti í bandarískt Patriot-loftvarnarkerfi sitt. Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraínu, brýndi fyrir leiðtogum bandalagsríkjanna mikilvægi þess að þeir tækju „afgerandi ákvarðanir“ um stuðning við loftvarnir landsins fyrir leiðtogafund NATO-ríkja sem hefst í Tyrklandi á morgun. Selenskí er meðal annars sagður ætla að funda með Donald Trump Bandaríkjaforseta á meðan á leiðtogafundinum stendur. „Evrópa og Bandaríkin hafa nægan mátt til þess að stöðva þennan hrylling,“ skrifaði Selenskí á samfélagsmiðla eftir árásirnar í nótt. Varaði forsetinn við því að árásir Rússa á íbúðablokkir héldu áfram á meðan flugskeyti í Patriot-kerfið söfnuðu ryki í vopnabúri bandamanna Úkraínu. Varnarlausir fyrir hraðfleygjum skotflaugum Bandaríkjamenn hafa að undanförnu gengið á birgðir sínar af PAC-3-flugskeytum með stríðsrekstri sínum gegn Íran. Áður en þær hófust náðu bandarískir framleiðendur flugskeytanna ekki að mæta eftirspurn Evrópuríkja eftir þeim. Selenskí forseti hefur meðal annars sagt tilbúinn að deila reynslu Úkraínumanna af því að nota ódýrar lausnir til þess að stöðva íranska sjálfsprengidróna Rússa með bandamönnum sínum til þess að þeir sói ekki fokdýrum flugskeytum í það. Á meðan skorturinn á flugskeytunum varir eru Úkraínumenn nær varnarlausir fyrir skotflaugum Rússa, eldflaugaknúnum flugskeytum sem falla hratt til jarðar úr mikilli hæð. Að minnsta kosti þrettán eru sagðir hafa látist í árásunum á Kænugarð og 56 særst. Þrír til viðbótar féllu í nágrenni höfuðborgarinnar og sextán særðust, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins. Hæfðu enn eina olíuhreinsistöðina í Rússlandi Rússar hafa nú gert tvær umfangsmiklar loftárásir á Kænugarð á innan við viku. Þær hafa að miklu leyti beinst að borgaralegum innviðum í borginni. Úkraínumenn héldu áfram svonefndum „langdrægum þvingunaraðgerðum“ sínum með drónaárás á aðra olíuhreinsistöð í Omsk í Síberíu nærri 2.500 kílómetra frá landamærum Rússlands og Úkraínu. Þetta er enn ein olíuhreinsistöðin sem Úkraínumenn hæfa með langdrægum drónum. Fyrri árásir á stöðvar við Moskvu leiddi til eldsneytisskorts sem borgarbúar fundu fyrir á eigin skinni. Þeir hafa að miklu leyti verið einangraðir fyrir áhrifum innrásarstríðs Vladímírs Pútín forseta gegn nágrönnum þeirra undanfarin fjögur ár.
Úkraína Rússland Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Bandaríkin Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Sjá meira