Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Valur Páll Eiríksson skrifar 9. júlí 2026 10:00 Ismael Saibari var svekktur þegar hann fór af velli gegn Kanada. Ryan Pierse - FIFA/FIFA via Getty Images Marokkó verður án stjörnuframherja liðsins, Ismael Saibari, er liðið mætir Frökkum í fyrsta leik 8-liða úrslita á HM í kvöld. Þjálfari liðsins staðfesti tíðindin í gær.
Saibari fór meiddur af velli í 3-0 sigri Marokkó á Kanada í 16-liða úrslitum keppninnar á laugardaginn var. Hann meiddist í læri og myndatökur hafa leitt í ljós að hann verður ekki leikfær í kvöld, þó vonast sé til að mótinu sé ekki lokið hjá kappanum - fari Marokkó áfram. Saibari hefur leitt línu Marokkó á mótinu með bravör. Hann skoraði gegn Brössum, sigurmark gegn Skotum og jöfnunarmark gegn Haíti í riðlakeppninni. Þá skoraði hann vítamarkið sem skaut liðinu áfram gegn Hollendingum í 32-liða úrslitum. Saibari er 25 ára gamall framherji sem hefur vakið athygli fyrir framgöngu sína með PSV Eindhoven í Hollandi. Hann skipti til Bayern Munchen í byrjun þessa mánaðar en þýska stórveldið greiddi 50 milljónir evra fyrir kappann sem gerir hann að næst dýrasta Marokkómanni sögunnar, á eftir Achraf Hakimi. Soufiane Rahimi (t.h.) mun líklega leiða línu Marokkó gegn Frökkum í kvöld.Kevin C. Cox/Getty Images Gert er ráð fyrir að Soufiane Rahimi, leikmaður Al Ain, taki sæti Saibari í framlínunni en hann kom inn af bekknum þegar Saibari meiddist síðustu helgi. Rahimi var markahæsti leikmaður Afríkukeppninnar árið 2020 þar sem Marokkó vann mótið. Rahimi var einnig markahæstur á ÓL 2024, þar sem Marokkó hlaut brons. Hann hefur skorað tvö mörk það sem af er á HM, gegn Haíti og Kanada.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Paragvæska þingkonan Celeste Amarilla hefur ráðist aftur að Kylian Mbappé, fyrirliða franska fótboltalandsliðsins. Eftirmyndir af Mbappé hafa verið brenndar í Paragvæ. 9. júlí 2026 08:02 Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Didier Deschamps, þjálfari franska fótboltalandsliðsins, kippir sér lítið upp við það þótt dómarar leiksins gegn Marokkó í átta liða úrslitum á HM komi frá Argentínu. 9. júlí 2026 07:30 FIFA hafnaði áfrýjun Frakka FIFA vísaði áfrýjun franska knattspyrnusambandsins á gulu spjaldi Michaels Olise frá. Þetta staðfesti Didier Deschamps, landsliðsþjálfari, í dag. 8. júlí 2026 17:01 Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fleiri fréttir Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Sjá meira
Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Paragvæska þingkonan Celeste Amarilla hefur ráðist aftur að Kylian Mbappé, fyrirliða franska fótboltalandsliðsins. Eftirmyndir af Mbappé hafa verið brenndar í Paragvæ. 9. júlí 2026 08:02
Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Didier Deschamps, þjálfari franska fótboltalandsliðsins, kippir sér lítið upp við það þótt dómarar leiksins gegn Marokkó í átta liða úrslitum á HM komi frá Argentínu. 9. júlí 2026 07:30
FIFA hafnaði áfrýjun Frakka FIFA vísaði áfrýjun franska knattspyrnusambandsins á gulu spjaldi Michaels Olise frá. Þetta staðfesti Didier Deschamps, landsliðsþjálfari, í dag. 8. júlí 2026 17:01