Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 10. júlí 2026 23:01 Hildur Sunna og Daði Már segja bæði ljóst að vefsala áfengis sé ólögleg. Um tuttugu fyrirtæki bjóða áfengi til sölu á Íslandi þrátt fyrir dóm um að vefsala á áfengi sé ólögleg. Lögregla segir erfitt að bregðast við umfangsmikilli sölu.
Netverslunum með áfengi hefur fjölgað ört hér á landi frá árinu 2020 en þá hófu fyrirtæki að selja og senda heim til landsmanna áfengi í skjóli þess að um útlensk fyrirtæki væri að ræða. Þangað til hafði ÁTVR eitt séð um sölu til einstaklinga á Íslandi. Í dag bjóða um tuttugu fyrirtæki fólki að kaupa hjá sér áfengi og sækja eða fá það sent en sum þessara fyrirtækja segjast geta afhent vínið heim til fólks á rétt um hálftíma. Í apríl var niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness að áfengissala eins þessara fyrirtækja, eða Smáríkisins, væri smásala og brot á einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Fleiri mál sem snúa að sölu netverslana á áfengi hafa ratað á borð lögreglunnar undanfarin misseri. „Það er til skoðunar hvað eigi að gera í ljósi þessa dóms,“ segir Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarlögreglustjóri. Salan orðin umfangsmikil Aðspurð hvort lögreglan geti stöðvað starfsemi þessara fyrirtækja eða hvort hún hefði getað það fyrr segir Hildur Sunna það mögulegt. „Alveg ábyggilega, en þetta er auðvitað mjög umfangsmikið og það væri mikið inngrip að fara í þetta að taka niður alla þessa starfsemi. Í rauninni í tilfellum sem þessum væri hægt að bara haldleggja allar vörur sem eru til sölu í ljósi þess að þetta er ólögmæt háttsemi og þannig stöðva háttsemina.“ Það sé þó hægara sagt en gert að bregðast við. „Í rauninni er þetta orðið það umfangsmikið að það er bara orðið tímaspursmál núna hvað ætlar löggjafinn að gera? Hver er vilji löggjafans? Er það að þessi netsala sé heimil og þeim verði þá heimilt að starfa óbreytt áfram eða að lögunum sé breytt, þannig að þetta sé ólögmæt starfsemi eins og hefur verið dæmd og þá er komin skýr afstaða og þá er auðvitað auðveldara fyrir lögregluna að aðhafast.“ Mikilvægt að fylgja lögum Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir ljóst að netsala áfengis sé óheimil. Hann segir jafnframt að engin umræða hafi átt sér stað innan ríkisstjórnarinnar um að breyta lögunum. „Það eru lög og eftir þeim á að fara. Þessir aðilar eru þá að taka ákveðna áhættu af því að það hefur þegar fallið dómur í héraðsdómi um lögmæti þessarar starfsemi og það verður síðan bara að koma í ljós. Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það að mismunandi túlkun eða skilningur laga fari í þennan farveg og við þurfum bara að sjá hann til enda.“
Áfengi Netverslun með áfengi Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira