Draumabyrjun Freys hjá norska stórveldinu Sindri Sverrisson skrifar 12. júlí 2026 17:16 Freyr Alexandersson byrjar vel hjá Rosenborg. Getty/Alessandro Sabattini Rosenborg vann öruggan og afar sannfærandi 3-0 sigur gegn Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, í fyrsta leik norska stórveldisins undir stjórn Freys Alexanderssonar.
Freyr var rekinn frá Brann í byrjun júní en fékk fljótt starf í sömu deild þegar hann var ráðinn til Rosenborgar. Rosenborg hefur átt afar erfitt uppdráttar á tímabilinu og var í fallsæti þegar Freyr tók við en með sigrinum í dag náði Rosenborg að senda Kristiansund niður í fallsæti. Jonas Svensson kom Rosenborg yfir á 25. mínútu og Dávid Duris bætti við marki skömmu síðar. Amin Chiakha skoraði svo á 54. mínútu og innsiglaði draumabyrjun Freys í starfi, þó að munurinn hefði alveg getað orðið meiri. Júlíus Mar Júlíusson stóð í vörn Kristiansund að vanda. Rosenborg er núna með 12 stig eftir 12 leiki, í 13. sæti af 16 liðum, en aðeins stigi fyrir ofan Kristiansund og áfram í bullandi fallbaráttu. Að sama skapi eru þó til að mynda aðeins þrjú stig upp í 8. sæti. Start er neðst í deildinni með sjö stig. Fyrrverandi lærisveinar Freys í Brann unnu 2-1 sigur gegn Start í dag, í fyrsta leik sínum eftir brotthvarf hans, þar sem sigurmarkið kom á 90. mínútu. Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Brann og lék fram á 62. mínútu. Sævar Atli Magnússon var svo á varamannabekknum og gæti því farið að spila að nýju eftir langvinna baráttu við meiðsli, en Eggert Aron Guðmundsson var utan hóps. Viðar Ari Jónsson var á varamannabekknum hjá HamKam sem gerði 2-2 jafntefli við Sandefjord á útivelli.
Norski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Sjá meira