„Miður mín fyrir hönd allra“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2026 21:35 Harry Kane heilsar Lionel Messi fyrir leikinn í kvöld. Getty/Michael Regan Harry Kane, fyrirliði Englands, sá sætið í úrslitaleiknum í hillingum þegar sex mínútur voru eftir og England 1-0 yfir. Argentínumenn skoruðu tvö mörk í lokin og sáu til þess að sextíu ára bið Englendinga eftir úrslitaleiknum lengist enn. „
Ég er miður mín fyrir hönd strákanna, miður mín fyrir hönd allra – liðsins, starfsfólksins, stuðningsmannanna,“ sagði Harry Kane við breska ríkisútvarpið eftir leikinn. „Við spiluðum góðan leik að mestu leyti. Þegar við komumst 1-0 yfir virtumst við reyna að halda í forystuna, sem er ekki nóg á þessu stigi. Þannig að ég er bara miður mín því við höfum lagt svo hart að okkur til að komast hingað og strákarnir hafa gefið allt sem þeir áttu, allt blóð, svita og tár,“ sagði Kane. „Þannig að það er bara ömurlegt að falla á síðasta metranum,“ sagði Kane. Um erfiðleikana eftir að hafa komist 1-0 yfir: „Við áttum í erfiðleikum með að setja pressu á boltann. Sérstaklega í fyrri hálfleik og í byrjun seinni hálfleiks pressuðum við þá vel. Við settum mikla pressu á þá hátt á vellinum sem gerði okkur kleift að vinna bolta og stjórna leiknum aðeins betur,“ sagði Kane. „Eftir markið, hvort sem það var vegna þess að þeir settu fleiri menn framar eða við gátum ekki jafnað þá mann á mann. Þá komu þeir bara eins og alda eftir öldu. Strákarnir voru að verjast skotum en á endanum var það bara ekki nóg,“ sagði Kane. Um hvort þetta hafi verið einum leik of mikið: „Ég veit það ekki. Strákarnir eru alltaf tilbúnir fyrir hvaða augnablik sem er í leiknum. Þegar við komumst yfir voru skilaboðin að halda áfram og skora annað mark. Svo þegar þeir skoruðu sín tvö mörk var það að reyna að finna eitthvað en okkur tókst ekki alveg að ná skriðþunganum aftur inn í leikinn,“ sagði Kane. „Við áttum margar góðar stundir á þessu móti, marga góða leiki og komumst aftur í undanúrslit. Við tölum um að banka á dyrnar, við erum nálægt því, við þurfum bara að finna það sem vantar upp á undir lok mótsins,“ sagði Kane. „Þessi mót taka sinn toll af manni með allri fyrirhöfninni, pressunni og hugarfarinu. Við höfum sýnt það í þessar sex eða sjö vikur sem við höfum verið saman en það vantar bara upp á þetta síðasta,“ sagði Kane.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira