„Fjögur ár eru langur tími“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2026 06:32 Harry Kane þakkar Lionel Messi fyrir leikinn og óskar honum til hamingju með sætið í úrslitaleiknum á HM. Getty/Catherine Ivill Fyrirliði enska landsliðsins er óviss um hvort hann eigi eftir að spila á fleiri heimsmeistaramótum.
Harry Kane var hikandi varðandi framtíðina í viðtölum eftir tap Englendinga á móti Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Kane er 32 ára gamall og verður því 36 ára þegar HM fer fram á Spáni, í Portúgal og Marokkó 2030. „Fjögur ár eru langur tími,“ sagði Harry Kane eftir enn eitt tapið í stórum útsláttarleik með Englandi. „Þetta er svipuð saga og hefur komið fyrir okkur áður. Okkur tókst ekki að halda skriðþunganum,“ sagði Kane. Að missa niður 1–0 forystu í tap á síðustu tíu mínútunum er sérstaklega erfitt, bætir fyrirliðinn við. „Við verðum að fara yfir leikinn og sjá hvernig við getum bætt okkur í slíkum aðstæðum en það hefur sennilega verið síðasta púslið sem vantaði á síðustu 4-5 stórmótum,“ sagði Kane. Tapið vekur einnig spurningar um framtíð Harry Kane með landsliðinu. Kane er vissulega á lokastigi ferilsins en hann vill ekki fullyrða um hvort hann spili á öðru heimsmeistaramóti. „Það er of snemmt að tala um það. Ég er maður sem tekur eitt ár í einu og sér hvernig mér líður. Að spila fyrir landsliðið er eitthvað sem ég nýt persónulega meira en nokkuð annað,“ sagði Kane. Gamalreyndur leikmaður í Argentínu veitir honum þó innblástur: Lionel Messi. „Hann er enn þá hér og stendur sig á þessu stigi. Ég tek því eins og það kemur. Núna snýst þetta bara um að meðtaka þetta þunga tap,“ sagði Kane. England mætir Frakklandi í bronsleiknum í Miami á laugardag. Argentína heldur áfram í úrslitaleikinn á sunnudag í New York gegn Spáni.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Tómas Bent og félagar í Hearts með sigurmark á ögurstundu Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Sjá meira