Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júlí 2026 23:43 Lionel Messi tókst ekki að bæta öðrum heimsmeistaratitli á glæsta ferilskrá sína. getty/Hector Vivas Tilfinningarnar báru Lionel Messi, fyrirliða Argentínu, ofurliði eftir úrslitaleik HM í kvöld. Argentínumenn lutu þar í lægra haldi fyrir Spánverjum, 1-0, en þetta var að öllum líkindum síðasti leikur Messis á heimsmeistaramóti.
Eftir að hafa farið á kostum á HM var Messi lítið áberandi í úrslitaleiknum í kvöld. Argentínumenn sóttu nánast ekkert og áttu aðeins tvö skot í leiknum. Messi átti það fyrra þegar þrjár mínútur voru eftir af framlengingunni en þá þrumaði hann boltanum í höfuð Mikels Merino. Messi var miður sín í leikslok þegar hann fylgdist með Spánverjum fagna heimsmeistaratitlinum. „Þetta var enginn draumaendir fyrir Messi sem hafði nánast engin áhrif á leikinn,“ sagði Joe Hart, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Englands, á BBC í leikslok. „Hann komst ekkert áleiðis fyrr en undir lokin. Það var samt enn smá líf í honum þá. Vitað var að hann myndi koma að öllum sem gerðist hjá Argentínu. Hann átti stórkostlegt mót en þetta var ekki hans dagur,“ bætti Hart við. HM í ár var sjötta heimsmeistaramót Messis. Hann varð heimsmeistari 2022 en var í tapliði í úrslitaleikjunum 2014 og 2026. Messi faðmar spænska ungstirnið Lamine Yamal eftir úrslitaleikinn.getty/Hector Vivas Messi skoraði átta mörk á HM í ár og lagði upp fjögur. Hann er leikja- og stoðsendingahæstur í sögu heimsmeistaramótsins og sá næstmarkahæsti á eftir Kylian Mbappé. Messi er nýorðinn 39 ára og verður 43 ára þegar næsta heimsmeistaramót fer fram. Hann er elsti útileikmaður sem hefur spilað úrslitaleik HM og aðeins annar leikmaður í sögu mótsins sem hefur tekið þátt í þremur úrslitaleikjum ásamt Cafu hinum brasilíska. Messi hefur leikið 207 landsleiki síðan 2005 og skorað 125 mörk. Frá 2023 hefur hann leikið með Inter Miami í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Hetjan Torres: „Þetta voru örlögin“ Ferran Torres reyndist hetja Spánar gegn Argentínu í úrslitaleik HM 2026. Hann skoraði eina markið í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar. Torres segir að þungu fargi hafi verið af sér létt þegar hann sá boltann í netinu. 19. júlí 2026 22:45 Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Argentínumaðurinn Leandro Paredes var rekinn af velli eftir úrslitaleik HM gegn Spánverjum fyrir slagsmál. 19. júlí 2026 22:29 Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Tómas Bent og félagar í Hearts með sigurmark á ögurstundu Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Sjá meira
Hetjan Torres: „Þetta voru örlögin“ Ferran Torres reyndist hetja Spánar gegn Argentínu í úrslitaleik HM 2026. Hann skoraði eina markið í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar. Torres segir að þungu fargi hafi verið af sér létt þegar hann sá boltann í netinu. 19. júlí 2026 22:45
Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Argentínumaðurinn Leandro Paredes var rekinn af velli eftir úrslitaleik HM gegn Spánverjum fyrir slagsmál. 19. júlí 2026 22:29