Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. júlí 2026 13:41 Formaður nýrrar stjórnar er Regína Ásvaldsdóttir og varaformaður Birna Einarsdóttir. Samsett Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað stjórn Landspítala til næstu tveggja ára. Formaður nýrrar stjórnar er Regína Ásvaldsdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Varaformaður verður Birna Einarsdóttir, áður bankastjóri Íslandsbanka árin 2008 til 2023.
Regína er reynslumikil innan opinberrar stjórsýslu. Hún hefur gegnt bæjarstjórastöðum í Mosfellsbæ og á Akranesi og var þar á undan forstöðumaður velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Regína skipaði sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í nýlegum borgarstjórnarkosningum. Aðrir stjórnarmenn eru Thor Aspelund, doktor í líftölfræði, Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri og Anna Sigríður Íslind, prófessor í tölvunarfræði og sérfræðingur í hönnun, þróun og notkun stafrænna heilbrigðistæknilausna og gervigreindar í heilbrigðisþjónustu, Varamenn í stjórn eru Óskar Reykdalsson, fyrrum forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor emerita, sem meðal annars sérhæfði sig rannsóknum í stefnumótum á sviði heilbrigðismála og innleiðingu hennar. Ráðherra skipar einnig tvo áheyrnarfulltrúa starfsmanna spítalans. Þeir eru Signý Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Theodór Skúli Sigurðsson svæfingalæknir. Stjórn ber ábyrgð á fjárhagsáætlunum og langtímastefnumótun Í tilkynningu ráðuneytisins segir að stjórn Landspítala skuli í samráði við forstjóra marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra og lögbundið hlutverk stofnunarinnar. Þá sé hlutverk hennar einnig að yfirfara árlega starfsáætlun og ársáætlun samkvæmt lögum um opinber fjármál, leggja sjálfstætt mat á áætlanirnar og markmið og mælikvarða sem þar eru sett fram og gera ráðherra grein fyrir mati sínu. „Þetta er öflugur hópur fólks sem saman býr yfir víðtækri þekkingu, menntun og reynslu á breiðu sviði í samræmi við lagaákvæðið um stjórn Landspítala. Þar er kveðið á um að í stjórninni sitji einstaklingar með þekkingu á rekstri og áætlanagerð, á heilbrigðisþjónustu og vísindarannsóknum á heilbrigðissviði og menntun heilbrigðisstétta og á opinberri stjórnsýslu og reglum stjórnsýsluréttar. Hér fást einnig mikilvægar tengingar við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, öldrunarþjónustuna og við Sjúkrahúsið á Akureyri en mér finnst afar mikilvægt að efla tengsl og samstarf þess við Landspítala. Ég vænti mikils af nýrri stjórn og óska henni velfarnaðar“ er haft eftir heilbrigðisráðherra í fréttatilkynningunni.
Landspítalinn Heilbrigðismál Vistaskipti Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira