Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson skrifar 22. júlí 2026 08:03 „Verður ekki önnur ályktun dregin en að upptaka evru með aðild að mynbandalagi Evrópu muni fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland.“ Þetta er ein af niðurstöðum sameiginlegrar skýrslu sem unnin var að frumkvæði og beiðni Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins, Félags atvinnurekenda og Viðskiptaráðs árið 2014. Skýrslan var unnin af hópi sérfræðinga undir merkjum Alþjóðamálastofunnar Háskóla Íslands þegar viðræður um aðild að Evrópusambandinu voru settar á bið til að meta stöðu lykilmála og þeirra hagsmuna sem væru undir í viðræðunum. Undanþágur og sérlausnir fengust Önnur meginniðurstaða skýrslunnar var að „Ísland hafði þegar náð fram sérlausnum, undanþágum og/eða aðlögunarfrestum í mörgum málum.“ Engu að síður var samningum um mikilvæga þætti ekki lokið og því ekki komin lokamynd á samningana. Í skýrslunni kemur fram að niðurstaða stórra og viðkvæmra samningsatriða væri oftar en ekki ráðið til lykta við lok samninga. Jafnframt er tekið fram að skýrslan er úttekt á stöðu samninganna en ekki heildstætt mat á kostum og göllum aðildar. Þannig sagði Viðskiptaráð í umsögn til Alþingis sama ár að þar sem ekki lægi fyrir hver endanleg niðurstaða viðræðna yrði, væri ekki hægt að framkvæma „heildstætt og hlutlægt mat“ á áhrifum aðildar. Til þess þyrfti að ljúka viðræðunum og fá fram raunverulegan samning. Núverandi seðlabankastjóri greindi kosti evrunnar Það er mjög margt athyglisvert í skýrslunni, enda er hún samtímaheimild um stöðu viðræðna. Ekki er minnstur fengur að mati Ásgeirs Jónssonar, sem mun hafa skrifað stærstan hluta efnahags- og gjaldmiðlakaflans á kostum og göllum þess að taka upp evru í stað krónu. Á mannamáli má draga greiningu skýrslunnar fram svona: Sjálfstæða íslenska krónan hefur ekki veitt Íslandi raunverulegt peningalegt sjálfstæði með stöðugleika, heldur leitt til hærri og sveiflukenndari vaxta, meiri verðbólgu, gengissveiflna, viðskiptakostnaðar og reglulegrar þarfar fyrir gengisfellingar eða fjármagnshöft. Með evru myndi Ísland fórna formlegu sjálfstæði í vaxta- og gengismálum en fá í staðinn lægri verðbólgu og vexti, stöðugri fjármögnun, greiðsluhæfan alþjóðlegan gjaldmiðil, öflugri lánveitanda til þrautavara og aukin viðskipti. Ávinningurinn væri, að mati höfunda, miklu meiri en kostnaðurinn. Orðrétt mat á reynsluna af krónunni og kostum evru Í skýrslunni er dregið fram að af þeim 78 ríkjum í heiminum sem telja færri en tvær milljónir íbúa er Ísland eina ríkið með fljótandi gengi og sjálfstæða peningamálastefnu. Í skýrslunni segir orðrétt: „Hin bitra staðreynd er sú að Íslendingar geta ekki bundið gengi gjaldmiðilsins síns niður með trúverðugum hætti nema með því að afsala sér sjálfstæði í peningamálum, með því að ganga í myntbandalag eða taka upp myntráð – eða binda gjaldmiðilinn niður með höftum. Það er sá kostur sem landsmenn hafa nauðugir orðið að taka. Vandræði á gjaldeyrismarkaði hafa síðan oftlega kallað fram haftaaðgerðir af ýmsum toga og ýtt undir einangrunarhyggju. Líklega hafa fáar vestrænar þjóðir snúist jafnhratt og afdráttarlaust gegn markaðsbúskap og Íslendingar, með höftum og bönnum eftir að fullveldi var fengið, og átt í jafnmiklum brösum síðan við að reka opið markaðshagkerfi á eigin ábyrgð, þó að slíkt sé vel þekkt í þriðja heiminum. Þegar allt þetta er dregið saman, auk þess að taka tillit til þess mikla viðskiptaábata sem alþjóðleg og greiðsluhæf mynt getur sannanlega fært smáþjóðum, verður ekki önnur ályktun dregin en að upptaka evru með aðild að myntbandalagi Evrópu muni fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland.“ Mikilvægt mat og umræða Textinn er lengri og fjallar einnig um hvaða ókostir og áskoranir fylgja því að taka upp aðra mynt. Fjölmargir kaflar skýrslunnar eru ekki síður athyglisverðir. Er ástæða til að hvetja áhugasama til að kynna sér efni hennar á vefsvæði Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands, sjá hér. Þá er hægt að hlusta á umræðu um efni skýrslunnar og lærdóma sem af henni má draga í nýjasta þætti Flekaskila, hlaðvarps um Alþjóðamál: Mikilvægt framlag til umræðunnar Það er ástæða til að hrósa Alþýðusambandinu, Samtökum atvinnulífsins, Félagi atvinnurekenda og Viðskiptaráði fyrir að hafa óskað eftir þessari mikilvægu greiningu á sínum tíma. Þrátt fyrir mikla leit hef ekki fundið nýrri dæmi um sérfræðivinnu eða heildstæða úttekt á þeirra vegum á Evrópumálunum. Þá virðist skýrslan heldur ekki aðgengileg á vefsvæðum þessara samtaka, við fyrstu leit. Það kemur einnig á óvart að málflutningur þessara aðila byggi ekki í meira mæli á þeim gögnum og greiningum sem fyrir liggja, og unnar voru að þeirra frumkvæði. Af lestri skýrslunnar er nefnilega augljóst að samfélagið á mikla hagsmuni undir því að látið verði á aðildarviðræður reyna til að ná fram þeim miklu kostum sem falist geta í aðild fyrir efnahagslifið, atvinnulífið, hagsmuni launþega og heimila, svo fátt eitt sé nefnt. Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Evrópusambandið Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Íslenska krónan Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Skoðun Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Sjá meira
„
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun