Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2026 10:32 Michael Olise sló HM-met Pele með því að gefa sjö stoðsendingar á heimsmeistaramótinu. Getty/Kevin C. Cox Hann hugsaði vel um liðsfélaga sína á heimsmeistaramótinu en Michael Olise er sakaður af fyrrverandi kærustu um að hugsa ekki um barnið sitt.
Lögfræðideila stendur yfir milli þeirra og eru frásagnir fyrrverandi parsins, sem nú eldar grátt silfur saman, í hrópandi ósamræmi. Hún heldur því fram að hann sé að svíkja það að borga meðlag. Ítalska blaðið La Gazzetta dello Sport fjallar um málið. Aðeins nokkrum dögum eftir tap franska liðsins í undanúrslitum heimsmeistaramótsins er hinn 24 ára gamli Michael Olise flæktur í harða deilu um meðlagsgreiðslur. Samkvæmt fréttum frá þýska blaðinu Bild sakar hin 34 ára gamla Fatima Zaunbrecher, sem var kærasta hans í tvö ár, leikmann Bayern München um að vanrækja dóttur þeirra og greiða ekki reglulegar meðlagsgreiðslur. Voru par í tvö ár Fatima býr í Düsseldorf og kynntist Olise í gegnum Instagram. Eftir að hafa spjallað á netinu hittust þau, fóru á stefnumót og urðu ástfangin. Þau voru par í tvö ár og á meðan á sambandi þeirra stóð eignuðust þau Aaliyah Noor en DNA-próf hefur síðan staðfest tengslin milli barnsins, sem nú er tuttugu mánaða, og fótboltamannsins. Hins vegar er Olise sagður neita að hitta dóttur sína. Að sögn Fatimu hefur Frakkinn aldrei hitt barnið í eigin persónu. Lögfræðingar leikmannsins munu hafa tilkynnt henni að „fundur yrði ekki árangursríkur“. Þar að auki var konunni upphaflega boðin mánaðarleg meðlagsgreiðsla upp á 836,50 evrur, (120 þúsund íslenskar krónur), upphæð sem síðar var hækkuð í tvö þúsund evrur (287 þúsund íslenskar krónur) þrátt fyrir að Olise hafi um átta milljónir evra í nettólaun en peningarnir hafa að sögn aldrei verið greiddir. 🚨 Michael Olise has acknowledged paternity of a 20-month-old daughter after undergoing a DNA test. 🇫🇷His child was born following a previous relationship with Fatima Zaunbrecher, with all communication between the two parties now taking place through lawyers. Fatima says she… pic.twitter.com/Aagwb90Y6G— Transfer News Live (@DeadlineDayLive) July 21, 2026 Frásögn Olise er, eins og við var að búast, önnur. Heimildarmenn nákomnir honum halda því fram að hann hafi aldrei neitað að greiða meðlag og hafi þvert á móti ítrekað boðið fyrrverandi kærustu sinni hærri upphæð en kveðið er á um í þýskum viðmiðunarreglum, en hafi aldrei fengið svar frá móður barnsins. Vildi 8,6 milljónir á mánuði Hins vegar hefur komið í ljós að Zaunbrecher hafði krafist mánaðarlegra meðlagsgreiðslna upp á sextíu þúsund evrur fyrir frönskum dómstóli eða 8,6 milljónir króna. Konan, sem nýtur aðstoðar lögfræðings í fjölskyldurétti, segist búa í einstaklingsíbúð ekki aðeins með dóttur sinni heldur einnig með móður sinni. „Hann þarf að axla ábyrgð,“ heldur Fatima áfram að ítreka við hvert tækifæri. Enn sem komið er hefur enginn dómstóll úrskurðað í málinu.
HM 2026 í fótbolta Þýski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Tómas Bent og félagar í Hearts með sigurmark á ögurstundu Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Sjá meira