Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Samúel Karl Ólason skrifar 26. júlí 2026 12:15 Abdul Ballout er 21 árs gamall og reyndi að ferðast til Sýrlands í fyrra. AP/Markus Schreiber, Lögreglan í Berlín Abdul Ballout, maðurinn sem grunaður er um að hafa ekið inn í þvögu fólks í Berlín í gærkvöldi, reyndi að ferðast til Sýrlands í fyrra. Hann var þó handtekinn í Líbanon og sendur aftur til Þýskalands, þar sem hann var í maí dæmdur í fangelsi. Hann var ekki byrjaður að afplána dóm sinn, vegna áfrýjunar, en hafði um tíma verið undir eftirliti lögreglu.
Einn lét lífið þegar Abdul Ballout ók á hóp fólks þar sem verið var að halda upp á hinsegin daga og er fjöldi særðra kominn upp í 25. Maðurinn er 21 árs gamall, kunnugur lögreglu og er talinn hafa verið stuðningsmaður, ef ekki meðlimur, Íslamska ríkisins, þar sem hann á að hafa verið í samskiptum við vígamenn samtakanna. Hans er enn leitað. Sjá einnig: Lýsa eftir þekktum öfgamanni Í maí var Abdul Ballout dæmdur til eins árs og tíu mánaða fangelsisvistar, samkvæmt frétt Bild, en saksóknarar áfrýjuðu þar sem þeim fannst dómurinn of vægur. Samkvæmt frétt Berliner Zeitung sat Abdul í fangelsi í Líbanon í tæpt ár, áður en hann var sendur aftur til Þýskalands. Hann var handtekinn við komuna til Þýskalands, í lok síðasta árs, og sat í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hann væri að skipuleggja hryðjuverkaárás. Honum var sleppt í maí eftir að dóminum gegn honum var áfrýjað. Enn liggur ekki fyrir hvort Abdul Ballout ók bílnum, sem er ekki bílaleigubíll heldur í einkaeigu, og hvort aðrir voru með honum. Fregnir hafa borist af því að íranskur maður, sem á að hafa verið farþegi í bílnum, hafi verið handtekinn. Það hefur þó ekki verið staðfest af lögreglu, þegar þetta er skrifað. Lögreglan sagði í morgun að einhverjir hefðu verið stungnir eftir að bíllinn staðnæmdist á tré en það er einnig óljóst.
Þýskaland Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira