Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 10:31 JJ Gabriel í fyrsta leiknum sínum með aðalliði Manchester United en hann kom inn á völlinn í lokin á móti Atletico de Madrid. Getty/Ash Donelon Manchester United vann 2-1 sigur á spænska stórliðinu Atlético Madrid í æfingarleik um verslunarmannahelgina en leiksins verður þó minnst sérstaklega fyrir skiptingu í seinni hálfleik.
Vera fimmtán ára tánings í liðinu varð til þess að Manchester United þurfti tvískiptan búningsklefa á Jarðarberjaleikvanginum í Stokkhólmi, Strawberry Arena, þar sem leikurinn fór fram. Bryan Mbeumo tryggði United sigur með tveimur mörkum en það þótti einnig fréttnæmt þegar knattspyrnustjórinn Michael Carrick skipti hinum fimmtán ára gamla JJ Gabriel inn á völlinn í seinni hálfleik. Strákurinn fékk að spila síðustu átta mínúturnar. Mikil eftirvænting hefur myndast í kringum þennan unga leikmann síðastliðna tólf mánuði, en hann hefur margsinnis verið boðaður til æfinga með aðalliðinu á þessum tíma. View this post on Instagram A post shared by Rising Ballers (@risingballers) Hann skoraði 26 mörk í 26 leikjum í U-18 ensku úrvalsdeildinni og stjórinn hans, Darren Fletcher, studdi þá ákvörðun að velja hann í undirbúningstímabilið með aðalliðinu. Gabriel var skilinn eftir heima þegar United hóf sumarið gegn Wrexham í Helsinki í Finnlandi en var í hópnum í leiknum á móti Rosenborg í Noregi. Þótt þessi efnilegi leikmaður hafi setið á bekknum sem ónotaður varamaður var reynslan af því að vera í leikmannahópi aðalliðsins samt sem áður risastórt skref fram á við. Nú fékk hann að spila aðeins 15 ára og 299 daga gamall og varð þar með yngsti leikmaðurinn til að spila fyrir United, þótt um óopinberan leik sé að ræða sem mun ekki teljast til metanna. Þessi ungi leikmaður virtist ótrúlega öruggur með boltann í stuttri innkomu sinni og sýndi hæfileika sem hafa fengið marga til að lýsa Gabriel sem einu mesta efni sinnar kynslóðar. Til að JJ Gabriel gæti tekið þátt í þessum leik þurfti Manchester United aukaaðstöðu utan búningsklefa liðsins því strákurinn mátti ekki klæða sig meðal hinna leikmanna liðsins. Blaðamaður Verdens Gang fékk að kíkja í klefa United og sjá enn fremur hvar hinn fimmtán ára gamli Gabriel þurfti að klæða sig en þetta má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by VG Sporten (@vgsporten) Gabriel verður ekki 16 ára fyrr en í október og er nú þegar að gera hluti sem enginn hefur gert áður. Enginn 15 ára leikmaður hefur nokkru sinni spilað keppnisleik fyrir Manchester United, sem opnar dyrnar fyrir Gabriel til að slá félagsmetið á næstu mánuðum. Gabriel var of ungur til að spila í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili – reglur keppninnar komu í veg fyrir frumraun hans þar sem hann var enn 14 ára þegar tímabilið hófst – en það er ekki útilokað að hann gæti tekið þátt í keppnisleik með aðalliðinu einhvern tíma á tímabilinu 2026–27. Til að verða yngsti leikmaður í sögu félagsins þyrfti hann að komast inn á völlinn fyrir 25. október og slá þar með áratugagamalt met markvarðarins heitins David Gaskell – 16 ára og 19 daga – frá árinu 1956. Líklegra er að tækifæri til þess gefist á fyrstu stigum deildabikarsins eða jafnvel í Meistaradeildinni, þar sem leikir í síðarnefndu Evrópukeppninni eru yfirleitt tæknilegri en líkamlegri og því rólegra umhverfi til að gefa nýjum hæfileikum tækifæri.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Sjá meira