Salah mættur til Tyrklands Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. ágúst 2026 12:02 Vel var tekið á móti Salah. trabzonspor Mohamed Salah er mættur til Tyrklands að ganga frá samningi við Trabzonspor. Hann lenti á flugvellinum í Istanbul í morgun og mun gangast undir læknisskoðun síðar í dag.
Salah var klæddur blá-rauða treyju Trabzonspor þegar hann steig út úr flugvélinni og hundruð aðdáenda biðu eftir því að hitta hann. Trabzonspor tilkynnti í gærkvöldi að félagið væri í formlegum samningaviðræðum við Salah og nú á bara eftir að ganga frá smáatriðum áður en skrifað verður undir. Læknisskoðun Salah fer fram í Istanbul síðdegis. Hann flýgur til svo til borgarinnar Trabzon til að skrifa undir samning við Trabzonspor. Salah mun klæðast treyju númer 61 en það er póstnúmer Trabzon. 📸 Mohamed Salah, İstanbul’da! ❤️💙#SalahIsComing pic.twitter.com/FYgB5svYmy— Trabzonspor (@Trabzonspor) August 5, 2026 Hinn 34 ára gamli Salah hefur verið samningslaus síðan síðasta tímabili Liverpool lauk. Hann ákvað að yfirgefa enska félagið í sumar eftir níu ár í Bítlaborginni, þar sem hann vann ensku úrvalsdeildina tvisvar, Meistaradeildina tvisvar og báðar bikarkeppnir Englands einu sinni. What a welcome for Mo Salah! 🇹🇷👏The Egyptian has arrived in Istanbul ahead of signing for Trabzonspor. pic.twitter.com/uTe7t1wec0— Match of the Day (@BBCMOTD) August 5, 2026 Trabzonspor er almennt talið fjórða sterkasta lið Tyrklands, á eftir liðunum úr höfuðborginni Istanbul: Fenerbahce, Galatasaray og Besiktas. Trabzonspor hafnaði í þriðja sæti deildarinnar á síðasta tímabili og mun spila umspilseinvígi um sæti í Evrópudeildinni en fer að minnsta kosti í Sambandsdeildina. Salah var langt kominn í samningaviðræðum við Besiktas en á síðustu stundu féllu viðræðurnar niður, vegna þess að aðilar komust ekki að samkomulagi um greiðslur. Trabzonspor var tilbúið að borga brúsann fyrir Salah en nákvæmar tölur liggja ekki enn fyrir.
Tyrkneski boltinn Mest lesið Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Dagskráin: Stórlið í eldlínunni Sport Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Fleiri fréttir Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Coutinho og Neymar sameinaðir á ný „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Sjá meira