Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2026 19:08 Mikael Neville Anderson og félagar í AGF unnu en náðu ekki að halda tveggja marka forystu. EPA/Jakub Kaczmarczyk Það voru ólík úrslit hjá Íslendingaliðum í Evrópukeppnum í kvöld en bæði lið voru á heimavelli.
Norska félagið Brann varð að sætta sig við 1-0 tap á heimavelli á móti kýpverska félaginu Apollon Limassol í undankeppni Sambandsdeildarinnar. AGF komst í 2-0 á móti Sabah Baku frá Aserbaídsjan og vann á endanum 2-1 sigur. Tap norska Íslendingaliðsins Brann var áfall fyrir drauma liðsins um að komast aftur í riðlakeppnina í Evrópu. Alen Ozbolt skoraði eina mark leiksins á 22. mínútu og Kýpverjarnir eru í fínum málum fyrir seinni leikinn á heimavelli í næstu viku. Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Brann en fór af velli á 68. mínútu en á sama tíma kom Sævar Atli Magnússon inn á völlinn sem varamaður. Eggert Aron Guðmundsson byrjaði líka og spilaði fyrstu 86 mínútur leiksins. Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson spilaði fyrstu áttatíu mínúturnar þegar AGF vann 2-1 heimasigur á Sabah FK í undankeppni Meistaradeildarinnar. Tómas Kristjánsson var allan tímann á bekknum. Það þurfti að seinka leiknum þar sem Sabah-liðið festist í umferðateppu á leið á völlinn.. AGF komst í 2-0 með mörkum frá James Bogere í sitthvorum hálfleiknum en Veljko Simic skoraði mikilvægt mark fyrir gestina fjórum mínútum eftir að danska liðið komst tveimur mörkum yfir. Það mark gæti vegið þungt í seinni leiknum úti í Aserbaídsjan. Bakúmenn töldu sig reyndar hafa jafnað metin í blálokin en myndbandsdómarar dæmdu markið af vegna rangstöðu. AGF slapp því með skrekkinn þar.
Sambandsdeild Evrópu Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira