Rósa Björk segir já Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. ágúst 2026 16:06 Rósa Björk var kjörin formaður Vinstri grænna í mars á þessu ári. Vísir/Vilhelm Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, hyggst segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Í stefnu Vinstri grænna er því haldið fram að hagsmunum landsmanna sé best komið utan Evrópusambandsins en rúmlega áttatíu prósent kjósenda flokksins hyggjast þó segja já. Hún segist finna fyrir viðhorfsbreytingu innan flokksins.
Rósa gerir grein fyrir afstöðu sinni í Facebook-færslu. Hún telji skynsamlegt að segja já við áframhaldandi viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. „Til að þjóðin sjái hvað það þýðir, hvers konar samning við gætum fengið. Ekki loka hurðum fyrir fram, heldur hafa þær opnar og sjá hvað viðræðurnar þýða fyrir okkur hér,“ skrifar Rósa. Hún hafi forðast að lýsa yfir skoðun sinni sem formaður flokks sem hefur það í stefnu sinni að hagsmunum sé best komið utan Evrópusambandsins en hefur líka innanborðs almenna félaga og fólk í trúnaðarstörfum fyrir flokkinn sem eru jákvæð í garð þess. Skoðanakannanir sýni greinilega vilja kjósenda Vinstri grænna til að segja já í atkvæðagreiðslunni í ágúst og en að flokknum beri skylda til að taka þau skilaboð til sín. „Þegar þrennar skoðanakannanir í sumar sýna yfirgnæfandi vilja hjá kjósendum okkar til að segja já (milli 82-93% kjósenda) þá sýnir það náttúrulega eindreginn og skýran vilja meðal kjósenda VG sem við í VG eigum að hlusta á og taka til okkar skilaboðin sem felast í þessu yfirgnæfandi hlutfalli,“ skrifar hún. Rósa segir að málefni náttúruverndar, landbúnaðar og sjávarútvegs verði að vera í öndvegi í viðræðunum og leggja verði sérstaka áherslu á hagsmuni vinnandi fólks. Auk þess sé mikilvægt að sett verði skýr umgjörð um gervigreind og stafræna umbyltingu. Á dögunum lýsti Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vinstri grænna og ráðherra, því yfir að hún hygðist segja nei við áframhaldandi viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. Umræðan að hennar mati snúist ekki um kosti eða galla Evrópusambandsins heldur um hvar valdið eigi að liggja. Hún sjái bakslag í mannréttindum og jafnrétti og sífellt fleiri ákvarðanir teknar fjær fólkinu sem þær varða.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Vinstri græn Utanríkismál Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira