Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Agnar Már Másson skrifar 10. ágúst 2026 15:07 Lögreglan hefur varist allra frétta vegna andlátsins við Vallargerði á Kársnesi. Vísir Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna vegna andláts í Vallargerði á Kársnesi í Kópavogi í gær.
Lögreglan greinir frá því í tilkynningu að íslenskur ríkisborgari annars vegar og erlendur ríkisborgari hins vegar hafi í dag í Héraðsdómi Reykjaness verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mannsláti í Kópavogi. Þar segir að annar mannanna hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. ágúst, en hinn til 17. ágúst. Hinn látni var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri, að sögn lögreglu. Fleira kemur ekki fram í tilkynningu lögreglu. Tilkynnt var um líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi síðdegis í gær, en maðurinn sem fyrir henni varð var fluttur á Landspítalann og lést þar síðdegis hinn sama dag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varist allra fregna af rannsókninni. Nokkrir voru í upphafi handteknir vegna málsins, að sögn lögreglu. Samkvæmt heimildum fréttastofu sáu nágrannar tvo menn hlaupa frá húsinu þar sem meintur glæpur mun hafa verið framinn. Einhverjir munu hafa séð dularfullan rauðan bíl, sem hafi um tíma numið staðar í miðri götunni fyrir framan húsið, og þá hafi einhverjir lýst því að mennirnir hafi hlaupið í átt að bílnum. Jafnframt lýsa nágrannar því að hafa heyrt hróp og köll. Það var síðan um tveimur tímum síðar þegar lögreglan réðst í aðgerðir í íbúð sem er í verslunarkjarna við Gnoðavog í Reykjavík. Þar voru minnst tveir handteknir. Mikill viðbúnaður lögreglu var á vettvangi, þar voru að minnsta kosti sex lögreglubílar og einn sérsveitarmaður. Þar sáust lögreglumenn leita í rusli og í runnum, en ekki liggur fyrir hverju þeir voru að leita að. Fréttin hefur verið uppfærð.
Lögreglumál Kópavogur Dómsmál Rannsókn á mannsláti á Kársnesi Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira