Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar 16. ágúst 2026 07:45 Það hefur verið áhugavert að fylgjast með opinberri umræðu undanfarin ár og greina ákveðið mynstur sem endurtekur sig í viðtölum, hlaðvörpum og kappræðum. Hvort sem það er í stjórnmálum, hlaðvörpum eða á samfélagsmiðlum, þá er ákveðinni rökræðutækni beitt óspart, stundum af yfirlögðu ráði en oft líka ómeðvitað. Ég rakst fyrst á greiningu á þessu ræðubragði í aðdraganda bandarísku forsetakosninganna árið 2024, þar sem forseti Bandaríkjanna notar þessa tækni meðvitað, og hef síðan þá séð hversu útbreitt það er í okkar eigin umræðum hér heima. Þessi tækni heitir á ensku Gish gallop. Þetta er rökræðutækni þar sem sá sem notar hana reynir að yfirbuga andstæðing sinn með því að dæla út gríðarlegum fjölda röksemda, hálfsannleika eða rangfærslna, stundum samsæriskenningum á mjög stuttum tíma. Markmiðið er ekki að vinna samtalið eða rökræðuna með haldbærum rökum, heldur að þreyta andstæðingin og taka af honum allan tíma. Sá sem notar þessa tækni varpar fram tugum ólíkra fullyrðinga á einni eða tveimur mínútum. Við vitum að það tekur stuttan tíma að segja lygar og lengri tíma að mæta þeim. Andstæðingurinn getur ómögulega leiðrétt allar rangfærslurnar á þeim tíma sem hann hefur. Ef hann sleppir því svo að svara nokkrum punktum, einfaldlega vegna þess að tíminn kláraðist, notar sá sem beitti tækninni það sem “sönnun“ fyrir því að hann hafi haft rétt fyrir sér. Iðulega má sjá stjórnmálamenn beita þessu í beinum útsendingum og kappræðum. Þegar ræðutíminn er stuttur, td 90 sekúndur, og enginn rauntíma staðreyndatékkari er til staðar, ákveða sumir að dæla út eins mörgum fullyrðingum og þeir geta. Andstæðingurinn fær svo kannski bara 60 sekúndur til að svara, sem er ómögulegur tími til að leiðrétta allan pakkann. Hér set ég upp skáldaðar sviðsmyndir til að sýna hvernig þessi tækni virkar í praktík. Fyrsta dæmið sýnir hvernig þetta birtist í hlaðvörpum og á samfélagsmiðlum þar sem umræðuefnið er innflytjendamál. Í hlaðvarpi er enginn rauntíma staðreyndatjekkari eða fréttamaður, eða spyrill til að grípa fram í og krefjast sönnunar, og því getur viðmælandinn eða stjórnandinn sjálfur dælt út fullyrðingum án þess að nokkur stoppari sé á þeim. Við vitum að í umræðum um innflytjendamál er oft spilað á tilfinningar, ótta og öryggistilfinningu fólks. Þar er Gish gallop beitt með því að steypa saman ólíkum málaflokkum, eins og glæpum, velferðarkerfinu, húsnæðismarkaðnum og menningu, í einn stóran hræðslupakka. Hér er klassískt dæmi um hvernig þetta hljómar í umræðunni: ”Sko, landið er bara að fyllast! Glæpatíðnin hefur hækkað um 200% á einu ári, spítalarnir ráða ekki við neitt af því að fólk sem hefur aldrei borgað skatt er að fylla biðlistana, húsnæðisverð er orðið óviðráðanlegt út af þessum þrýstingi, og svo eru skólarnir okkar farnir að taka niður íslenska fánann til að móðga engan! Auk þess voru 10.000 manns að koma yfir landamærin í síðasta mánuði án þess að sýna vegabréf og glæpagengi frá Rúmeníu eru búin að taka yfir heilu hverfin í Árbænum!“ En hvað er að gerast hérna? Sá sem talar blandaði saman ýktum og skálduðum glæpatölum, álagi á heilbrigðiskerfið (sem á sér margar aðrar ástæður), húsnæðisvanda, mýtur og hreinar rangfærslur varðandi skólana(“taka niður fánann“) og óraunhæfum tölum um landamæraeftirlit. Vandamálið fyrir þann sem reynir að svara þessu er að ef einhver reynir að leiðrétta vitleysuna þarf hann að útskýra tölfræði Ríkislögreglustjóra á 30 sekúndum, stöðuna í húsnæðismálum á 30 sekúndum og leiðrétta skólasöguna á 30 sekúndum. Tíminn er kannski búinn eða athygli hlustanda er ekki meiri, og sá sem beitti Gish gallop segir strax “Sjáðu, þú neitar því ekki einu sinni að glæpagengin séu að taka yfir Árbæinn!“ Sjálfsuppfyllandi dæmi. Annað dæmi, tökum bara klassískt dæmi um hvernig þetta birtist í kappræðum stjórnmálamanna í sjónvarpinu. Segjum að umræðuefnið séu umhverfismál og orkuskipti. Spyrillinn gefur hvorum viðmælanda um sig 60 sekúndur til að svara(þetta eru uppskáldaðir karakterar). Kári, rökræðumaður sem vill ræða málin á yfirvegaðan hátt. Gunnar er rökræðumaður sem beitir Gish gallop tækninni. Spyrillinn spyr. “Gunnar, af hverju ert þú á móti nýju orkustefnunni?“ Gunnar (Gish gallop tækninni beitt af fullum krafti , 60 sekúndur), “Heyrðu, það er alveg augljóst! Fyrst og fremst kosta þessar rafhlöður meira en allt fjárlagagatið, allir vita að rafbílar brenna fjórum sinnum hraðar upp og slökkviliðið getur ekki slökkt í þeim, vindmyllurnar eru að drepa allan fuglastofninn á vestfjörðum, og svo voru þessar sömu hugmyndir prófaðar í Þýskalandi 2017 og framleiðslan hrapaði um 40%! Auk þess eru þetta allt saman tilskipanir frá Evrópusambandinu sem við skrifuðum undir ólöglega árið 2019, vísindamenn í Svíþjóð voru að sýna fram á að stálframleiðslan geti aldrei orðið græn, og á meðan er Kína að byggja tvö kolaverk á viku! Hvað gerðist rétt í þessu? það sem gerðist er að Gunnar henti út svona sirka 7 ólíkum fullyrðingum, sumum hálfsannleik, sumum rangfærslum og sumum óviðkomandi staðreyndum, á aðeins 45 sekúndum. Næst fær Kári orðið, 60 sekúndur, en hvert er vandamál Kára? Vandamálið ef hann Kári ætlar að svara öllu, þarf hann að útskýra tölfræðina um rafbílabyggingar á tuttugu sekúndum, leiðrétta vitleysuna um fuglastofninn á tuttu sekúndum, og utskýra hvað gerðist í Þýskalandi 2017, á tuttugu sekúndum... og þá er tíminn hans búinn! Hann náði ekki einu sinni að koma að sínum eigin rökum eða svara hinum 4 punktunum. Kári mun því líklega svara ruglaður og stressaður: “Bíddu, varðandi Þýskaland, það var ekki vegna orkuskipta heldur út af gaskreppunni! Og varðandi rafbílana, tölfræðin sýnir að þeir brenna sjaldnar en bensínbílar... og varðandi Evrópusambandið... æji, tíminn minn er víst búinn” Gunnar (brosir og grípur fram í) “Sjáðu, þú svaraði hvorki fullyrðingunum um Kína, fuglana né lagalegu hliðina! Þú ert auðvitað ekki með nein svör við þessu” Hvernig er best að svara Gish gallop? Ef þú lendir í viðmælanda sem notar þessa tækni (hvort sem hann gerir það meðvitað eða ómeðvitað) virkar yfirleitt mjög illa að reyna að svara hverri einustu fullyrðingu. Ef þú reynir það fellurðu í gildrunna og tíminn þinn klárast. Þess í stað er oft best að beita eftirfarandi aðferðum: Númer eitt Benda á gish gallop tæknina beint. Td nefna staðreyndina að viðmælandinn sé að varpa fram tugum fullyrðinga á einni mínútu til að kaffæra umræðuna frekar en að ræða kjarna málsins. Númer tvo, stýra samtalinu til baka. Eins og að velja eina staka fullyrðingu (helst þá sem er auðveldast að hrekja), hrekja hana, og krefjast þess svo að viðmælandinn rökstyðji eitt atriði í einu frekar en að vaða úr einu í annað. Númer þrjú skora á stjórnandann. Ef um viðtal eða kappræður er að ræða, beina spurningunni til fundarstjóra eða spyrils og biðja um að umræðunni sé stýrt á einn afmarkaðan flokk í einu. Númer fjögur vísast í staðreyndatjekk. Benda á að ómögulegt sé að leiðrétta allt í beinni útsendingu og hvetja hlustendur til að fletta upp opinberum gögnum sjálfir. Mér finnst gríðarlega mikilvægt að benda á þessa tækni. Þegar við lærum að þekkja hana verður miklu auðveldara að koma í veg fyrir að opinber umræða snúist um upphlaup og stjórnlaust upplýsingaflóð. Höfundur er Pírati. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðni Freyr Öfjörð Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun