Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. ágúst 2026 10:02 Saga Garðarsdóttir fer með eitt aðalhlutverka Ástarinnar sem eftir er. Fimm leiknar kvikmyndir og ein heimildarmynd eru tilnefndar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Fulltrúi Íslands í ár er gamandramað Ástin sem eftir er. Þetta er í fjórða sinn sem leikstjórinn og handritshöfundurinn Hlynur Pálmason er tilnefndur og í fimmta skiptið sem framleiðandinn Anton Máni Svansson er tilnefndur.
Tilnefndar kvikmyndir í ár hafa hlotið viðurkenningu bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi, þar á meðal ein sem hlaut Óskarsverðlaunin. Þetta er í fjórða sinn sem Hlynur Pálmason er tilnefndur til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs en tilnefningarnar hafa komið fyrir hönd bæði Íslands og Danmerkur. Þá er þetta í fimmta sinn sem framleiðandinn Anton Máni Svansson er tilnefndur og í fjórða sinn fyrir samstarf með Hlyni. Vetrarbræður var fyrsta kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd. Fyrsta tilnefning Hlyns kom fyrir Vetrarbræður (Vinterbrødre), sem var framlag Danmerkur til verðlaunanna árið 2018 (sem Kona fer í stríð vann). Anton Máni var einn framleiðenda Vetrarbræðra, en árið áður hafði hann verið tilnefndur fyrir íslensku kvikmyndina Hjartastein sem var leikstýrt af Guðmundi Arnari Guðmundssyni. Hlynur var aftur tilnefndur árið 2019, þá fyrir Hvítan, hvítan dag en hún var framlag Íslands og var hann tilnefndur sem bæði leikstjóri og handritshöfundur ásamt framleiðandanum Antoni Mána Svanssyni. Þriðja tilnefning Hlyns kom árið 2022 fyrir Volaða land (Vanskabte Land/Godland). Hann var þá enn á ný fulltrúi Danmerkur sem leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar og Anton Máni einn framleiðenda. Þetta er því í fjórða sinn sem Hlynur Pálmason og Anton Máni Svansson hljóta tilnefningu saman til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Hvítur, hvítur dagur var fyrsta kvikmynd Hlyns á íslensku. Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru stofnuð árið 2002 og hafa verið veitt árlega frá árinu 2005. Þau eru ein virtustu menningarverðlaun Norðurlandanna og eru veitt norrænni leikinni kvikmynd eða heimildarmynd sem hefur verið sýnd í kvikmyndahúsum. Opinber tilnefningarathöfn fer fram á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Haugasundi í Noregi þriðjudaginn 25. ágúst. Þar munu hinir tilnefndu kvikmyndagerðarmenn hittast og kynna myndir sínar fyrir hátíðargestum. Kvikmyndirnar sem tilnefndar eru: Begyndelser (Beginnings) - Danmörk. Leikstjóri er Jeanette Nordahl, handritshöfunar eru Rasmus Birch og Jeanette Nordahl og framleiðendur eru Eva Jakobsen, Katrin Pors og Mikkel Jersin. Birita - Færeyjar. Leikstjóri og handritshöfundur er Búi Dam og framleiðendur eru Jón Hammer, Durita Sumberg og Mark Steele. Jossain on valo joka ei sammu (A Light That Never Goes Out) - Finnland. Leikstjóri og handritshöfundur er Lauri-Matti Parppei og framleiðandi er Ilona Tolmunen. Ástin sem eftir er (The Love That Remains) - Ísland. Leikstjóri og handritshöfundur er Hlynur Pálmason og framleiðendur eru Anton Máni Svansson og Katrin Pors. Affeksjonsverdi (Sentimental Value) - Noregur. Leikstjóri er Joachim Trier, handritshöfundar eru Eskil Vogt og Joachim Trier og framleiðendur eru Maria Ekerhovd og Andrea Berentsen Ottmar. Kevlarsjäl (Kevlar Soul) - Svíþjóð. Leikstjóri er Maria Eriksson-Hecht, handritshöfundur er Pelle Rådström og framleiðendur eru Ronny Fritsche og Lizette Jonjic. Grænland sendi ekki inn framlag árið 2026. Í dómnefnd Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 sitja Jacob Ludvigsen frá Danmörku, Jan Berg Jørgensen frá Færeyjum, Marjo Pipinen frá Finnlandi, Jóna Finnsdóttir frá Íslandi, Anne Gjelsvik frá Noregi og Jonas Holmberg frá Svíþjóð. Sigurvegarar Kvikmyndaverðlauna, Tónlistarverðlauna, Bókmenntaverðlauna, Barna- og unglingabókmenntaverðlauna og Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026 verða tilkynntir þann 20. október næstkomandi. Sigurvegararnir fá afhenta verðlaunastyttu og peningaverðlaun sem nema 300 þúsund dönskum krónum (rúmlega 5,6 milljónum íslenskra króna). Verðlaunafénu fyrir kvikmyndaverðlaunin er skipt jafnt á milli handritshöfunda, leikstjóra og framleiðanda til að endurspegla að kvikmyndalist sé unnin í nánu samstarfi þessara þriggja lykilaðila.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Norðurlandaráð Tengdar fréttir Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Kvikmyndin Ljósbrot heldur áfram sigurför sinni um heiminn en hún er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025. 18. ágúst 2025 10:15 Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Snerting, kvikmynd Baltasars Kormáks, hefur verið tilnefnd til hinna virtu kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Myndin er ein af sex sem tilnefndar eru en tilnefningarnar voru gerðar opinberar á Alþjóðlegu norsku kvikmyndahátíðinni í Haugesund. 20. ágúst 2024 11:27 Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Snerting, kvikmynd Baltasars Kormáks, hefur verið tilnefnd til hinna virtu kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Myndin er ein af sex sem tilnefndar eru en tilnefningarnar voru gerðar opinberar á Alþjóðlegu norsku kvikmyndahátíðinni í Haugesund. 20. ágúst 2024 11:27 Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið „Hún sagði já“ Lífið Léttist við stöðugt pizzuát Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Steinn Ármann er látinn Lífið Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Brjálaðar boltamömmur berjast Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Sjá meira
Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Kvikmyndin Ljósbrot heldur áfram sigurför sinni um heiminn en hún er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025. 18. ágúst 2025 10:15
Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Snerting, kvikmynd Baltasars Kormáks, hefur verið tilnefnd til hinna virtu kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Myndin er ein af sex sem tilnefndar eru en tilnefningarnar voru gerðar opinberar á Alþjóðlegu norsku kvikmyndahátíðinni í Haugesund. 20. ágúst 2024 11:27
Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Snerting, kvikmynd Baltasars Kormáks, hefur verið tilnefnd til hinna virtu kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Myndin er ein af sex sem tilnefndar eru en tilnefningarnar voru gerðar opinberar á Alþjóðlegu norsku kvikmyndahátíðinni í Haugesund. 20. ágúst 2024 11:27