Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Sindri Sverrisson skrifar 26. ágúst 2026 11:56 Moise Kean og Albert Guðmundsson eru enn liðsfélagar en Kean hefur mikinn áhuga á að komast til Como og spila í Meistaradeild Evrópu. Getty Ítalski framherjinn Moise Kean, liðsfélagi Alberts Guðmundssonar, hefur gripið til óæskilegra aðgerða til þess að knýja fram sölu á sjálfum sér frá Fiorentina til Como.
Kean dreymir um að spila undir stjórn Cesc Fabregas í Meistaradeild Evrópu í vetur en ekki hefur náðst samkomulag á milli Fiorentina og Como um sölu. Samkvæmt ítölskum miðlum er Kean nú farinn í hart við Fiorentina og mætti hann seint á æfingu í morgun, og ákvað svo að taka ekki þátt, eftir að hafa gefið skýrt til kynna að hann vildi komast til Como. Þessa hegðun telja forráðamenn Fiorentina ekki boðlega enda geti leikmaður ekki haldið félaginu í gíslingu og ráðið því hvenær og hvers konar samningar nást. La Gazzetta dello Sport segir að lengst af hafi litið út fyrir að viðræður gengju vel og að allir aðilar væru sáttir en að nú virðist komið babb í bátinn. Pugno duro della @acffiorentina con Kean: multato e riconvocato nel pomeriggio per allenarsi da solo. Per ogni allenamento che salterà verrà multato nuovamente— Gianluca Di Marzio (@DiMarzio) August 26, 2026 Como mun hafa boðið 40 milljónir evra í Kean en Fiorentina á eftir að svara því auk þess sem félagið er sagt vilja finna leikmann í stað Kean áður en að sölu gæti orðið. Ítalski fjölmiðlamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að forráðamenn Fiorentina ætli ekki að líða aðgerðir Kean. Hann fái sekt vegna hegðunar sinnar í morgun og hafi verið skipað að mæta og æfa einn síðdegis. Hann verði aftur sektaður sleppi hann þeirri æfingu eða öðrum æfingum í kjölfarið.
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira