Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Birgir Olgeirsson skrifar 26. ágúst 2026 16:24 Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling, segist ekki eiga fyrir 500 þúsund króna sekt Fjölmiðlanefndar. Fjölmiðlanefnd hefur sektað Þórarin Hjartarson, stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, um 500 þúsund krónur fyrir að skrá hlaðvarpið ekki sem fjölmiðil. Ákvörðunin kemur rúmum tveimur mánuðum eftir að ráðuneyti Loga Einarssonar greindi frá því að fyrirhugað væri að hefðbundin hlaðvörp yrðu ekki lengur skráningarskyld. „
Þetta er það skrýtnasta sem ég hef lent í. Það er búið að koma fram frá stjórnvöldum að hlaðvörp verði ekki skilgreind sem fjölmiðlar en nú er ég sektaður fyrir að skrá mig ekki sem fjölmiðil,“ segir Þórarinn. Í bréfi Fjölmiðlanefndar til Þórarins segir að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið gegn ákvæði fjölmiðlalaga um skráningu fjölmiðla. Við ákvörðun sektarinnar hafi verið litið til eðlis brotsins og atvika málsins. Bréfið sem fjölmiðlanefnd sendi Þórarni. Aðsend Þórarinn segist hafa óskað eftir lengri fresti en hefur nú verið sendur reikningur vegna sektarinnar. Ráðuneytið boðaði breytingar Vísir greindi frá því í júní að vinna væri hafin í menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu við endurskoðun fjölmiðlalaga. Í svari ráðuneytisins sagði að skerpa ætti á lagalegri skilgreiningu þess hvað teldist fjölmiðill. Útgangspunktur vinnunnar væri að hefðbundin hlaðvörp yrðu ekki skráningarskyld. Stefnt væri að því að kynna lagabreytingarnar á næsta þingvetri. Breytingarnar hafa ekki tekið gildi og Fjölmiðlanefnd byggir ákvörðun sína á gildandi lögum. Á ekki fyrir sektinni Þórarinn ætlar að ráðfæra sig við lögmann um næstu skref. Hann segist ekki geta greitt sektina. „Ég hef ekki efni á þessu. Hver einasta króna sem hlaðvarpið hefur aflað hefur farið í nýtt stúdíó og ég á alls ekki fyrir þessu.“ Ákvörðun Fjölmiðlanefndar er endanleg á stjórnsýslustigi. Vilji Þórarinn fá henni hnekkt þarf hann að höfða mál innan sex mánaða. Málshöfðun frestar ekki réttaráhrifum hennar. Þórarinn gagnrýnir einnig hvernig nefndin hafi staðið að málum gagnvart hlaðvörpum. Hann segir önnur hlaðvörp hafa hætt að svara erindum hennar án þess að fá sekt. „Það sem er magnað í þessu er að önnur hlaðvörp hættu að svara þeim. Það virðist hafa verið miklu betri leið því þau fengu ekki sektir,“ segir Þórarinn.
Hlaðvörp Fjölmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Þrátt fyrir að Vísir hafi sagt af fyrirætlunum ráðuneytis Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem ganga út á að skera hlaðvarpara úr snöru fjölmiðlanefndar, er sem nefndin vilji ekki sleppa takinu á þeim stöllum í Komið gott – Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur sem svara fyrir sig. 31. júlí 2026 11:20 Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, lætur af störfum nú þegar þriðja skipunartímabili hennar lýkur í haust. 19. ágúst 2026 07:16 Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Fleiri fréttir Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Sjá meira
Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Þrátt fyrir að Vísir hafi sagt af fyrirætlunum ráðuneytis Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem ganga út á að skera hlaðvarpara úr snöru fjölmiðlanefndar, er sem nefndin vilji ekki sleppa takinu á þeim stöllum í Komið gott – Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur sem svara fyrir sig. 31. júlí 2026 11:20
Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, lætur af störfum nú þegar þriðja skipunartímabili hennar lýkur í haust. 19. ágúst 2026 07:16