Enski boltinn

Zetterer á leið í læknis­skoðun hjá Leeds

Stefán Árni Pálsson skrifar
Michael Zetterer í leik með Eintracht Frankfurt á síðasta tímabili.
Michael Zetterer í leik með Eintracht Frankfurt á síðasta tímabili. Vísir/getty

Michael Zetterer er á barmi þess að ganga í raðir Leeds United frá Eintracht Frankfurt.

Samkvæmt The Athletic hefur Leeds náð samkomulagi um félagaskiptin og þýski markvörðurinn er væntanlegur í læknisskoðun hjá enska félaginu áður en gengið verður endanlega frá félagaskiptunum.

Zetterer, sem er 30 ára gamall, hefur verið hjá Frankfurt frá árinu 2024 eftir að hafa leikið með Werder Bremen. Hann hefur öðlast mikla reynslu í þýska boltanum og verður nú næsta viðbót Leeds í markvarðarstöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×