Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. september 2026 09:22 Daði Már Kristófersson hélt blaðamannafund í morgun. Vísir/Anton Brink Fjármála- og efnahagsráðherra boðar jákvæða afkomu upp á fimm milljarða í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 á blaðamannafundi í morgun. Hann hóf kynninguna á að benda á að uppsafnaður halli ríkissjóðs frá árinu 2019 væri 866 milljarðar króna. Það hafi verið stærsta viðfangsefni ríkisstjórnarinnar að ná jafnvægi í ríkisfjármálum svo hægt sé að skapa nauðsynlegar forsendur fyrir lækkun verðbólgu. Áætlað er að afkoma A-hluta ríkissjóðs verði jákvæð um tæplega sjö milljarða króna og að afgangur af rekstri B-hluta verði 1,5 milljarður króna sem er 1,5 milljörðum króna lakari afkoma en samkvæmt horfum ársins 2026. Einn stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs sé vaxtabyrðin sem nemur 168 milljörðum króna árið 2026 en til stendur að hún lækki árið 2027. Til stendur að útgjaldavöxtur ríkisins verði 1,1 prósent í samdrætti. Kristrún skrifaði núll á plagg til að tákna að um væri að ræða hallalaus fjárlög.Vísir/Anton Brink 16,2 milljörðum króna verður varið í heilsu og heilbrigðismál, 4,5 milljörðum í menntamál og atvinnustefnu og sjö milljarðar eiga að fara í samfélagslegt öryggi og samgöngur. Þá verður 4,4 milljörðum varið í Þjóðarhöll og aðrar menningarframkvæmdir, 8,8 milljörðum í börn og fjölskyldur og loks fara 11,8 milljarðar í kjarabætur. Helstu verkefni eru reifuð í frumvarpinu og má þar nefna ný hjúkrunarrými, átak í markaðssetnginu ferðaþjónust, aukin framlög til varnarmála, stytting biðlista í þjónustu við börn, styrking háskólastigsins og áframhaldandi hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega. Nýjar tekjuráðstafanir og aðhald 44 milljarðar eiga að koma inn í ríkissjóð með aðhaldi í rekstri, þar af fjórir milljarðar úr almennu aðhaldi, þrír milljarðar vegna fækkunar stöðugilda og loks 36 milljarðar vegna sértækra útgjaldaaðgerða. Ráðist verður í nýjar tekjuráðstafanir og munu þær skila 22,6 milljörðum króna í ríkissjóð. Af þeim eru sex milljarðar vegna bankaskattsins svokallaða, fimm milljarðar vegna gjaldtöku í ferðaþjónustu, fjórir milljarðar vegna kílómetragjaldsins og aðrir fjórir þar sem baðlón verða sett í almennt virðisaukaskattsþrep. Loks verður endurgreiðsla virðisaukaskatts lækkuð vegna íbúðahúsnæðis og á það að skila 3,6 milljörðum í ríkissjóð. Til stendur að breyta lögunum um kílómetragjald á ökutæki og hækka þau um 15,9 prósent, það er 5,2 prósent í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps árið 2027. Þá er lagt til að bifreiðagjald hækki um 5,2 prósent auk sérstakrar hækkunar skatts á fjármálafyrirtæki. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Fleiri fréttir Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Sjá meira