„Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. september 2026 13:21 Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Formaður Sjálfstæðisflokksins segir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár fela í sér þyngri byrðar á bæði fjölskyldur og fyrirtæki. Hærri álögur komi ekki í stað varanlegs aðhalds í ríkisrekstri.
Eins og fram hefur komið kynnti Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár í morgun á blaðamannafundi. Hann boðar jákvæða afkomu upp á fimm milljarða en uppsafnaður halli ríkissjóðs frá árinu 2019 er 866 milljarðar króna. Daði sagði stærsta viðfangsefni ríkisstjórnarinnar að ná jafnvægi í ríkisfjármálum. „Síðasta haust boðaði forsætisráðherra verðmætasköpunarhaust. Það varð að vaxtahækkunarvori og nú stefnir í verðbólguvetur,“ skrifar Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins í tilkynningu á samfélagsmiðlum vegna frumvarpsins. Hún bendir á að kjörtímabilið sé nánast hálfnað. Hún segir frumvarpið boða þyngri byrðar á bæði fjölskyldur og fyrirtæki. Til viðbótar við skattahækkanir sem ríkisstjórnin hafi þegar ráðist í eigi nú að sækja nærri 23 milljarða með nýjum sköttum og álögum og kílómetragjaldið eigi að hækka um tæp sextán prósent. „Hallalaus fjárlög eru auðvitað mikilvægt markmið. En hærri álögur á fólkið í landinu koma ekki í stað varanlegs aðhalds í ríkisrekstri. Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar.Heimili og fyrirtæki bíða enn eftir efndum á loforðum um lægri verðbólgu og vexti. Ég vona svo sannarlega að þetta fjárlagafrumvarp skili þeim efndum. Því miður bendir allt til þess að svo verði ekki.“
Fjárlagafrumvarp 2027 Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira