Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Aron Guðmundsson skrifar 8. september 2026 20:46 Sigurður Arnar átti draumahöggið á úrtökimótinu í dag golf.is / Seth@golf.is Íslenski kylfingurinn Sigurður Arnar Garðarsson átti draumahögg á fyrsta hring sínum á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi þegar hann fór holu í höggi á 17. holu vallarins.
Sigurður er einn átta Íslendinga sem berjast um sæti á Evrópumótaröðinni, DP World Tour. Þessa dagana fer fram úrtökumót á fyrsta stigi í Þýskalandi. Komast þarf í gegnum þrjú stig til þess að öðlast þátttökurétt á DP World Tour. Draumahögg Sigurðar á 17. holunni sló hann með níu járni, 151 metra. Hola í höggi. Sigurður fór þennan fyrsta hring sinn á úrtökumótinu á einu höggi undir pari, alls 71 höggi og er hann sem stendur jafn í nítjánda sæti. Sigurður eftir draumahöggiðSigurður á Instagram Alls spila 82 kylfingar á mótinu í Þýskalandi og má ætla að rúmlega fimmtungur þeirra fari áfram á annað stig. Aron Snær Júlíusson er efstu Íslendinganna eftir fyrsta hringinn í áttunda sæti. Aron Snær fór fyrsta hring sinn á þremur höggum undir pari, 69 höggum. Ríkjandi Íslandsmeistari síðustu tveggja ára, Dagbjartur Sigurbrandsson er einnig í fínum málum á sama skori og Sigurður, einu höggi undir pari og jafn í nítjánda sæti. Jóhann Frank Halldórsson fór fyrsta hringinn á pari og er jafn í 35. sæti. Ragnar Garðarson er á einu höggi yfir pari og jafn í 46. sæti. Logi Sigurðsson er á tveimur höggum yfir pari og jafn í 53. sæti. Tómas Eiríksson Hjaltested er á þremur höggum yfir pari og jafn í 62. sæti og þá er Hlynur Bergsson jafn í 67. sæti á fjórum höggum yfir pari.
Golf Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Enski boltinn Fleiri fréttir Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar „Auðvitað var auka hjartsláttur“ Óliver heldur áfram að slá í gegn Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? LIV-mótaröðin í uppnámi en Rory Mcllroy ekki spenntur að fá kylfinga þaðan Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Óliver: „Mjög mikill heiður“ Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn McIlroy áhyggjufullur eftir erfiða reynslu Óliver var með funheitan pútter Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Óliver kominn í undanúrslit á sterku móti Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Sjá meira