Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar 10. september 2026 12:00 Í dag, 10.september, er Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Dagurinn er helgaður vitundarvakningu í samfélaginu um forvarnir gegn sjálfsvígum. Starfsfólk Lífs og sálar tekur þátt í deginum og verður gulur litur allsráðandi hjá okkur í dag, enda stendur boðskapur dagsins hjörtum okkar nær. Markmið dagsins er að auka samstöðu og meðvitund fólks um allan heim um geðheilbrigði og mikilvægi sjálfsvígsforvarna og hefur meginboðskapur hans frá upphafi verið að hægt sé að koma í veg fyrir sjálfsvíg. Nánar, að aukin meðvitund um að koma megi í veg fyrir sjálfsvíg, sé forvörn í sjálfu sér. Á Íslandi er þessi dagur hluti af Gulum september, átaksverkefni með sama markmið sem hefur staðið frá árinu 2023, með einkunnarorðin aðgát, kærleikur og umhyggja (gulurseptember.is). Átakið teygir sig yfir í októbermánuð og er lokahnykkurinn Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn þann 10.október n.k. Dagurinn í dag minnir okkur á að hvert og eitt okkar skiptir máli og er ekkert okkar þar undanskilið. Líf hvers einstaklings er dýrmætt, og hvert og eitt okkar á skilið umhyggju og alúð. Okkur er öllum fært að sýna öðrum, og okkur sjálfum, umhyggju og stuðning, hvert á okkar einstaka hátt. Sum okkar sýna umhyggju helst í verki, önnur með orðum, og enn önnur með öðrum hætti. En hvernig er best sýna stuðning þegar okkur grunar að einhver í kringum okkur sé í vanlíðan og jafnvel að glíma við sjálfsvígshugsanir? Algengt er að fólk sem er í mikilli vanlíðan eða jafnvel íhugar að enda eigið líf, finnist það vera aleitt og yfirgefið. Ef við merkjum slíka líðan hjá öðrum, getur það reynst lífsbjörg að vita af stuðningi, samkennd og hjálpsemi annarrar manneskju. Að upplifa að við stöndum ekki ein. Það getur t.d. falist í því að spyrja hvernig fólk hafi það; spyrja beint, hlusta, vera til staðar, benda á hvar hjálp er að finna, eða aðstoða viðkomandi við að ná í hjálp og frekari stuðning. Eftirfylgd að smá tíma liðnum er einnig mikilvæg ef við verðum þess áskynja að einhver sé í mikilli vanlíðan – þ.e. að hafa aftur samband við viðkomandi og spyrja og athugað hvernig gangi, og bjóða fram aðstoð eða stuðning – eða að tryggja að viðkomandi fái aðstoð fagaðila. Öll erum við manneskjur, og því fylgir ýmislegt sem reynir á okkur. Það er mismunandi hvað það er sem hvert og eitt okkar lendir í og upplifir, en það sem við eigum öll sameiginlegt er að áskoranir og hindranir eru hluti af lífi okkar allra. Það hreinlega fylgir mannlegri tilvist að standa stundum í stormi. Sumir stormar eru sterkir og eru lengi að ganga yfir, meðan aðrir eru stuttir og snarpir. Dagurinn í dag, 10.september, minnir okkur öll á, að sannarlega er hægt að fá hjálp og stuðning við vanlíðan, sjálfsskaða, sjálfsvígshugsunum- eða áformum. Má t.d. nefna eftirfarandi aðila: Hjálparsími Rauða krossins: 1717 og netspjall á www.raudikrossinn.is Bráðamóttaka geðþjónustu á Landspítala: 543 4050 Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar: 1700 Hjálparsími Píeta: 1799 Neyðarlínan: 112 Á heimasíðu átaksins gulurseptember.is, er auk þessa að finna ítarlegan lista yfir þau úrræði, stuðning og hjálp sem er í boði á öllu landinu við vanlíðan, sjálfsvígshugsunum og sjálfsskaða, bæði í heilbrigðiskerfinu og hjá ýmsum samtökum, félögum og stofnunum. Klæðumst gulu og minnum hvert annað á að við stöndum ekki ein, í dag sem og aðra daga. Höfundur er sálfræðingur hjá Lífi og sál sálfræði- og ráðgjafastofu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar