Fiskikóngurinn og Háskólinn rannsaka skötu Bjarki Sigurðsson skrifar 15. september 2026 16:18 Fiskikóngurinn er mikill skötumaður. Rannsóknarverkefnið Skötuveisla fékk fyrr á árinu tæplega þrjátíu milljóna króna styrk úr Matvælasjóði. Verkefnið er á vegum Háskóla Íslands, Matís og Fiskikóngsins þar sem kæst skata verður rannsökuð.
Um árabil hefur kæst skata verið hluti af íslenskri matarhefð þó svo að síðustu ár borði flestir hana bara einn dag á ári, á Þorláksmessu. Fyrir mörgum er hún ómissandi hluti af jólunum og flykkjast þúsundir í skötuveislur um land allt ár eftir ár. Þrjátíu milljóna styrkur Fyrr í sumar greindi Atvinnuvegaráðuneytið frá þeim verkefnum sem fengu úthlutað úr Matvælasjóði á árinu. Það vakti athygli að tæpar þrjátíu milljónir fóru í verkefni sem eingöngu var kallað „Skötuveisla“ með litlum viðbótarupplýsingum, nema að Háskóli Íslands stæði að verkefninu. Skatan er svo sannarlega ljúffeng, segja sumir. Aðrir segja eitthvað allt annað. Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir Björn Gíslason, kynningar- og vefritstjóri Háskóla Íslands, að Valdimar Tryggvi Hafstein, prófessor í þjóðfræði, leiði verkefnið fyrir hönd háskólans. Með honum séu Sigurlaug Skírnisdóttir líffræðingur frá Matís, Bryndís Eva Birgisdóttir, prófessor í næringarfræði, og svo Fiskikóngurinn sjálfur, Kristján Berg Ásgeirsson, sem er einn afkastamesti skötuverkandi landsins. „Verkefnið sameinar þjóðfræði, örverufræði og næringarfræði. Annars vegar verður fylgst með kæsingu skötu frá upphafi til enda og örverur, efnabreytingar og gæði afurðarinnar rannsökuð með nýjustu rannsóknaraðferðum. Hins vegar beinist verkefnið að verkþekkingunni sem býr hjá því fáa handverksfólki sem enn verkar skötu. Hvernig veit það hvort skatan sé lítið, hæfilega eða mikið kæst? Hvaða hlutverki gegna lykt, bragð, útlit og áferð í þessu mati?“ segir í lýsingu Valdimars á verkefninu. Aldrei verið rannsökuð Framleiðsluferli kæstrar skötu hafi aldrei verið rannsakað með heildstæðum hætti. Þess vegna sé lítið vitað hvað gerist líffræðilega þegar skatan kæsist, hvaða örverur taka þátt í ferlinu, hvernig hið sterka bragð og lykt myndast og hvaða áhrif neysla hennar kann að hafa á mannslíkamann. „Nafn verkefnisins, Skötuveisla, vísar jafnframt til þess að í verkefninu verður haldin sérstök rannsóknar-skötuveisla eða íhlutunarrannsókn. Þar munu þátttakendur annars vegar borða kæsta skötu og hins vegar sambærilega fiskmáltíð án kæsingar. Fyrir og eftir verða tekin sýni og mældir ýmsir heilsutengdir þættir, meðal annars breytingar á þarmaflóru,“ segir Valdimar. Hvað gerist? Þannig verði hægt að rannsaka hvaða áhrif neysla kæstrar skötu hefur á líkamann og hvort hún sé holl, óholl eða jafnvel góð fyrir meltinguna. „Eitt af markmiðum verkefnisins er einnig að styrkja stöðu kæstrar skötu sem mikilvægrar íslenskrar matararfleifðar og auka sýnileika hennar innan alþjóðlegs samstarfs um verndun staðbundinna matarhefða. Í stuttu máli má segja að verkefnið leitist við að svara tveimur stórum spurningum: Hvað gerist þegar skata kæsist? Og hvað gerist þegar við borðum hana?“ segir Valdimar.
Matur Háskólar Sjávarréttir Sjávarútvegur Jól Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Fleiri fréttir Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum Sjá meira