Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Valur Páll Eiríksson skrifar 15. september 2026 20:31 Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fór síðast fram á Nývangi árið 1999 þegar Manchester United vann ótrúlegan sigur á Bayern Munchen. Getty Barcelona hefur verið verðlaunað fyrir veigamiklar framkvæmdir á hinum sögufræga Nývangi þar sem félagið fær að halda úrslitaleik Meistaradeildarinnar á vellinum árið 2029. Það er sléttum 30 árum eftir að Manchester United vann einn frægasta úrslitaleik keppninnar þar vorið 1999.
Manchester United varð fyrsta enska liðið í sögunni til að tryggja sér þrennu titla er það lagði Bayern Munchen á Nývangi sumarið 1999. Bayern leiddi þá 1-0 á 90. Mínútu en mörk frá Teddy Sheringham og Ole Gunnar Solskjær í uppbótartíma skiluðu United 2-1 sögulegum sigri og þriðja titli liðsins þá leiktíðina auk ensku úrvalsdeildarinnar og ensku bikarkeppninnar. UEFA opinberaði í dag að úrslitaleikurinn fari aftur frá á Nývangi árið 2029 en þar er enn verið að vinna að framkvæmdum sem héldu Barcelona frá leikvanginum í tvær leiktíðir, þar til í nóvember í fyrra. Enn komast færri að en vilja á Nývangi í dag vegna framkvæmdanna en að þeim loknum eiga 105 þúsund manns að komast þar fyrir í sæti. Einnig var opinberað að ári fyrr, 2028, mun úrslitaleikur keppninnar fara fram á Allianz Arena, heimavelli Bayern í Munchen. Þar vann Chelsea heimamenn í Bayern vorið 2012 í úrslitaleik og PSG vann 5-0 sigur á Inter í fyrravor. Úrslitaleikur í Meistaradeild kvenna fer þá fram á Groupama-vellinum í Lyon sumarið 2028 og á Þúsaldarvellinum í Cardiff vorið 2029. Lyon er sigursælasta lið í sögu kvennakeppninnar með átta titla en mun í fyrsta sinn halda úrslitaleikinn eftir tvö ár. Þá er það einnig í fyrsta sinn sem úrslitaleikurinn fer fram á þjóðarleikvangi Walesverja en úrslitaleikur keppninnar fór fram á Cardiff City-vellinum árið 2016, sama ár og karlaleikurinn fór fram á Þúsaldarvellinum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira