„Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. september 2026 22:18 Egill Jónsson er stjórnarformaður Tækniskólans. Samsett Stjórnarformaður Tækniskólans telur að Hafnarfjarðarbær þurfi að standa undir tjóni sem verður af því að skólinn fékk ekki lóð í Hafnarfirði. Fjölmörg sveitarfélög hafa boðað fram aðstoð, þar á meðal Reykjavíkurborg.
Greint var frá því í gær að ekkert yrði af áformaðri uppbyggingu nýrrar byggingar Tækniskólans í Hafnarfirði líkt og stóð til. Ástæðan var sú að bænum tókst ekki að afhenda skólanum fyrirhugaða lóð. Egill Jónsson, stjórnarformaður Tækniskólans, segir að vinna við uppbygginguna hafi hafist fyrir átta árum og viljayfirlýsing hafi verið undirrituð af Hafnarfjarðarbæ, Tækniskólanum og stjórnvöldum þremur árum eftir það. „Núna fyrir tveimur árum voru undirritaðir samningar, fastir samningar um málið við ríkið og Hafnarfjarðarbæ, um að þar skuli rísa 30 þúsund fermetra nýbygging Tækniskólans í Flensborgarhöfn,“ segir Egill sem fór yfir málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Það féll í hlut Hafnarfjarðar að leggja fram lóðina, sem er um fjórir og hálfur hektari, auk fjárframlags líkt og venjan er í sambandi við framhaldsskóla. Hins vegar hafi það ekki gengið eftir. Hafi vanmetið flækjustigið „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn,“ segir Egill en tekur ítrekað skýrt fram að forsvarsmenn skólans og bæjarins hafi alltaf átt í góðu samstarfi. „Það sem var áskorun þarna varðandi lóðina er að þetta er náttúrulega stór lóð og á henni eru margar byggingar sem þurfa að víkja.“ Það hafi allan tímann legið skýrt fyrir að Hafnarfjarðarbær þyrfti að sjá um uppkaup á byggingunum og vitað að það yrði áskorun. Forsvarsmenn hans hafi samt sem áður staðið keikir að samkomulaginu að sögn Egils og treystu forsvarsmenn skólans því að það myndi ganga eftir. „Ég held, án þess að ég vilji tala fyrir Hafnarfjörð, að Hafnarfjörður hafi kannski og við þá með þeim vanmetið flækjustig og áskoranir við það að kaupa upp svona mikið af húsnæði. Það gekk alveg þokkalega með megnið af húsnæðinu, en það gekk hins vegar bara og hefur ekki gengið varðandi ákveðnar byggingar.“ Egill segir að vonandi nýtist lóðin þá í eitthvað annað. Bærinn eigi að greiða beint tjón „Við erum, eins og ég sagði, búin að undirbúa þetta í átta ár og það er búið að setja í þetta góða undirbúningsvinnu. Hún kostar vissulega. Ég vil ekki nefna upphæðina sem þetta skapar eða það fjártjón sem af þessu verður,“ segir Egill. Það alvarlegasta sé að nú tefjist framkvæmdin um að minnsta kosti tvö ár. „En þetta hefur líka kostað,“ segir hann en neitar að gefa upp upphæðina sem sé þó undir þrjú hundruð milljónum króna. „Við förum eingöngu fram á að Hafnarfjörður beri af þessu beint tjón sem skólinn verður fyrir af þessum, þessum völdum og það er, kannski skýrist aðeins af framhaldinu og við munum reyna að lágmarka það. Í besta falli verður það ekki eitthvað mjög stórt, stórt tjón í stóra samhenginu en auðvitað eru þetta alvöruupphæðir.“ Egill segist taka gagnrýni og geri sér grein fyrir því að forsvarsmenn skólans hafi haldið áfram að vinna í verkefninu þrátt fyrir að vita að óvissa væri með lóðina. Hann bætir þó við að til að mynda hafi ekki verið farið í neinar hönnunarframkvæmdir enn vegna þessa. Fjölmörg sveitarfélög boðið fram aðstoð Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur boðið Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal eftir að samkomulagið við Hafnarfjörð fór út um þúfur. „Við erum mjög ánægð með það framtak borgarinnar og þess utan þær lóðir sem eru boðnar, okkur líst ágætlega á þær en auðvitað er þetta ekki frágengið. Ég get líka svo sem upplýst það að það eru fjölmörg sveitarfélög sem hafa samband við okkur þessa dagana,“ segir Egill. „Kosturinn við þær lóðir sem Reykjavíkurborg er að bjóða í höllunum uppi við Úlfarsárdal, Úlfarsfell, nálægt Bauhaus, er að þar eru ekki neinar byggingar fyrir á þeim lóðum. Það er nú allavega strax minnkar óvissuna.“ Viðræður þeirra við Reykjavíkurborg séu enn óformlegar en segist Egill finna fyrir miklum stuðningi frá þeim og öðrum sveitarfélögum við að koma öllum skólanum undir eitt þak. „Það þýðir ekki endalaust að horfa í baksýnisspegilinn, við ætlum að læra af því en við erum alveg keik og við höfum vind í seglunum. Skólinn mun rísa og við munum gera allt til þess að hann rísi hratt og vel.“
Framhaldsskólar Hafnarfjörður Reykjavík Reykjavík síðdegis Bylgjan Skóla- og menntamál Hafnarmál Jarða- og lóðamál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira