Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar 19. september 2026 12:02 Það er mikið rætt um stuðning ríkisins við einkarekna fjölmiðla. Orðið fjölmiðlastyrkir gefur auðveldlega þá mynd að þar sé um að ræða almennt stuðningskerfi við íslenska einkarekna fjölmiðlun. Svo er þó ekki. Almennur rekstrarstuðningur ríkisins er samkvæmt lögum ætlaður til að efla ritstjórnir og styðja við fréttaþjónustu og lýðræðislega umræðu. Stuðningshæfur kostnaður tengist vinnslu frétta og fréttatengds efnis. Það þýðir að íslenskur afþreyingarmiðill, sem framleiðir eða miðlar kvikmyndum, sjónvarpsefni eða öðru afþreyingarefni en rekur ekki slíka fréttastarfsemi, stendur í reynd utan þessa almenna rekstrarstuðnings. Það væri í sjálfu sér pólitísk ákvörðun sem hægt væri að ræða sérstaklega. En þá mætti ætla að önnur stuðningskerfi ríkisins væru aðgengileg fjölbreyttari hópi einkarekinna fjölmiðla. Þar kemur Talsetningar og textunarsjóður fjölmiðlaveitna til sögunnar. Sá sjóður á að styðja íslenska tungu með því að styrkja talsetningu og textun. Reyndar eingöngu með því að endurgreiða áður útlagðan kostnað í textun og talsetningu. En þar eru jafnframt önnur og mjög þröng skilyrði. Samkvæmt nýjum reglum þarf áskriftarfjölmiðill að hafa fleiri en 2.000 áskrifendur og jafnframt segir nú berum orðum: „Umsækjandi skal sjálfur starfrækja viðkomandi áskriftarfjölmiðil.“ Við síðustu úthlutun bárust þrjár umsóknir. Tvær þeirra uppfylltu skilyrðin að mati stjórnvalda: umsóknir Símans og Sýnar. Þau fengu styrkina. Þá vaknar einföld spurning. Hvar eiga sjálfstæðir íslenskir afþreyingarmiðlar heima í stuðningskerfi stjórnvalda? Almennu fjölmiðlastyrkirnir eru miðaðir við fréttir og fréttatengt efni. Þegar komið er að sjóði sem sérstaklega tengist sjónvarpsefni, talsetningu og textun taka við skilyrði um áskriftarfjölmiðil, fjölda áskrifenda og að umsækjandinn sjálfur starfræki áskriftarmiðilinn. Þetta er sérstaklega umhugsunarvert þegar stjórnvöld tala á sama tíma um fjölbreytni, nýliðun og samkeppni á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Skjár 1 hefur ítrekað gert athugasemdir við ákvarðanir ráðuneytisins vegna Talsetningar- og textunarsjóðsins og leitað með málin til Umboðsmanns Alþingis og Samkeppniseftirlitsins. Þau mál eru til meðferðar og niðurstaða þeirra liggur því ekki fyrir. Málið snýst ekki eingöngu um Skjá 1 eða eina styrkumsókn. Spurningin er stærri: Viljum við opinbert stuðningskerfi sem styður fjölbreytta íslenska fjölmiðlun eða kerfi þar sem fyrst þarf að passa inn í mjög ákveðið rekstrarform til þess að eiga möguleika á stuðningi? Íslenskur fjölmiðill hættir ekki að vera íslenskur fjölmiðill þótt hann flytji kvikmyndir í stað frétta. Og íslensk tunga verður ekki síður íslensk þótt hún birtist sem texti undir kvikmynd. Höfundur er forráðamaður afþreyingarmiðilsins Skjás 1. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Íslensk tunga Bíó og sjónvarp Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun