Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Freyja Þórisdóttir skrifar 19. september 2026 20:19 Í dag var síðasti bíllinn seldur hjá Bílaumboðinu Heklu á Laugaveginum. Á myndinni má sjá Friðbert Friðbertsson forstjóra ásamt kaupendunum. Aðsend Bílaumboðinu Heklu hefur verið lokað á Laugaveginum en á mánudag opnar fyrirtækið á nýjum stað í Þorraholti í Garðabænum. Flutningarnir eru mikil tímamót í sögu umboðsins en verslunin hafði staðið í 65 ár við Laugaveg og var þar áður á Hverfisgötu. Nú lýkur því rúmlega 90 ára skeiði sem reksturinn hafði búsetu í Reykjavík og nýir tímar taka við.
Þetta staðfestir Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu bílaumboðs í samtali við blaðamann Vísis en hann segir Heklu-fánann hafa verið dreginn niður í hinsta sinn á Laugaveginum fyrr í dag, laugardaginn 19. september. Mikil tímamót Fáni með Heklu-lógóinu hefur verið dreginn að húni í marga áratugi við Laugaveg en hann var dreginn niður í síðasta sinn fyrr í dag, laugardaginn 19. september.Aðsend „Þetta er náttúrulega mikil saga. Fyrirtækið er búið að vera síðan 1960, eða 61, við Laugaveginn og áður á Hverfisgötu svo að þetta eru mikil tímamót,“ segir hann og bætir við að flutningarnir yfir í Þorraholt hafi gengið tiltölulega vel. Greint var frá því í vor að öll starfsemi Heklu myndi sameinast undir einu þaki í Garðabænum í lok sumars. „Upphaflega ætluðum við að fara annað en eins og er hjá Reykjavík hefur það verið þannig að flest stærri fyrirtæki hverfa frá Reykjavík, þá hafa þau fengið litla fyrirgreiðslu og svona vandræðagangur sem hefur verið þar,“ útskýrir Friðbert og segir alla innanhúss hafa tekið vel í flutningana enda verði aðstaða fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini með besta móti í nýja húsnæðinu. „Þetta er allt búið að ganga ótrúlega vel, húsbyggingin og flutningar og fólk er bara spennt og ánægt með þetta. Aðstaða viðskiptavina og starfsfólks verður miklu betri hérna að öllu leyti og það eru allir rosa spenntir.“ Dálitlar breytingar fyrir fólk Hann segir alla starfsmennina halda vinnunni en það sé líklegt að þeir sem hafi starfað hvað lengst á Laugaveginum muni þurfa tíma til að venjast nýju vinnuumhverfi. „Elsti starfsmaðurinn er búinn að vera 47 ár, svona sá sem lengst hefur starfað hérna, 47 eða 48 ár og það eru dálitlar breytingar fyrir svona fólk að fara á nýjan stað,“ segir Friðbert. Öll starfsemi Heklu verður færð undir sama þak frá og með næsta mánudegi, þeim 21. september. Aðsend Síðustu viðskiptavinirnir á Laugaveginum hafi ekki haft hugmynd um að verslunin þar væri að loka en þau hafi fengið blómavönd og kampavín enda um tímamótakaup að ræða. „Nú er bara þeirri sögu lokið og við erum bara að tæma húsið og það er bara, það er raunverulega allt meira og minna komið,“ segir Friðbert og bætir við að þau hlakki verulega til að bjóða gamla og nýja viðskiptavini velkomna á nýja staðinn. Friðbert segist þegar hafa tekið eftir miklum áhuga og að það hafi ófáir litið við á nýja staðnum og skoðað sig um. „Það eru sumir sem eru að kíkja í heimsókn og það er bara voða gaman og allir velkomnir auðvitað. Fyrrverandi starfsmenn líka að kíkja og sjá sem eru komnir á eftirlaun og svona,“ segir Friðbert.
Tímamót Bílar Verslun Reykjavík Garðabær Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Sjá meira