Fótbolti

Dramatískur sigur og lið Sveindísar á mikilli siglingu

Aron Guðmundsson skrifar
Sveindís Jane fagnar marki í leik með Angel City 
Sveindís Jane fagnar marki í leik með Angel City  Mynd; Angel City

Sveindís Jane Jónsdóttir átti góðan leik er lið hennar Angel City hafði betur gegn einu af toppliðum NWSL-deildarinnar, Washington Spirit, og er nú búið að koma sér vel fyrir í sæti sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni.

Sveindís var sem fyrr í byrjunarliði Angel City í gær og var tekin af velli undir lok leiks en Maiara Niehues skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Angel City á 88. mínútu.

Angel City hefur verið eitt besta lið NESL deildarinnar upp á síðkastið og klifrað jafnt og þétt upp töfluna. Nú er liðið í 5. sæti þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Átta efstu lið deildarinnar tryggja sér þátttökurétt í úrslitakeppni hennar.

Sigur næturinnar var sá fimmti í síðustu sex leikjum Angel City en Washington Spirit er búið að vera eitt besta lið deildarinnar til þessa og er í 3. sæti. Því var um afar öflugan sigur að ræða hjá Sveindísi Jane og liðsfélögum hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×