Skoðun

Þegar kjara­bar­átta kennara bitnar á börnunum

Sigvaldi Egill Lárusson skrifar

Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslenskt menntakerfi. Símafriður, skýrari einkunnagjöf og lenging skólaársins. Við hjá Heimili og skóla, landssamtökum foreldra, fögnuðum þessum aðgerðum.

Það sem gerðist næst olli okkur vonbrigðum. Í stað þess að ræða hvernig bæta megi nám barna, beindist umræðan að því að gera lítið úr staðreyndum og hreinlega rangfærslum.

Formaður Kennarasambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, hélt því fram opinberlega að kennsludagar í íslenskum grunnskólum væru 180 og að það væri sambærilegt á öllum hinum Norðurlöndunum. Hvorugt er rétt.

Kennsludagar eru ekki 180, heldur um 170

Samkvæmt grunnskólalögum eru skóladagar nemenda 180, en af þeim eru kennsludagar aðeins um 170. Þetta er í samræmi við gögn OECD og Eurydice og kemur skýrt fram í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytisins. Munurinn skiptir máli, því inni í 180 dögunum eru dagar þar sem lítil sem engin kennsla fer fram:

Skólasetning getur náð yfir tvo daga, þar sem hver nemandi mætir aðeins í 10 til 15 mínútur annan daginn. Þetta er ekki kennsludagur.

  • Jólaball í tvær klukkustundir, þar sem engin kennsla fer fram, er ekki kennsludagur.
  • Foreldraviðtal oft haldið tvisvar á ári í 10 til 15 mínútur er ekki kennsludagur.
  • Skólaslit, þar sem nemendur mæta í stutta samveru en ekki kennslu, er ekki kennsludagur.

Allir þessir dagar teljast samt inn í 180 daga skólaársins. Að kalla þá „kennsludaga" er einfaldlega rangt.

Skólaárið er ekki sambærilegt á Norðurlöndunum.

Önnur fullyrðingin stenst ekki heldur. Samkvæmt OECD og Eurydice er skólaárið á Íslandi 30 dögum styttra en í Danmörku, 20 dögum styttra en í Noregi, 17 dögum styttra en í Finnlandi og 8 dögum styttra en í Svíþjóð. Dönsk börn fá um 40% fleiri kennslustundir en íslensk börn, sem samsvarar um fjórum heilum kennsluárum yfir grunnskólagönguna. Fullyrðing um að þetta sé „sambærilegt á öllum hinum Norðurlöndunum" stenst því enga skoðun.

Erindi til Kennarasambandsins

Stjórn Heimilis og skóla hefur ákveðið að senda erindi til stjórnar Kennarasambandsins og óska eftir því að kannað verði hvort ummæli formannsins samrýmist siðareglum sambandsins.

Erindi stjórnar Heimilis og skóla til Kennarasambands Íslands

Við berum fulla virðingu fyrir kennurum og styðjum að þeir búi við góð kjör og starfsaðstæður. En þegar forystumaður Kennarasambandsins gengur fram með rangfærslur um skólastarf á opinberum vettvangi hefur það vissulega áhrif.

Um hvað á skólaþróun að snúast?

Skólaþróun á Íslandi á ekki að snúast fyrst og fremst um kjarabaráttu kennara. Hún á að snúast um nemendur, um árangur þeirra og um hvernig við gerum íslenskt menntakerfi betra.

Því miður vekur það ugg að í nýjustu tillögum ráðherra til að bæta námsárangur barna í kjölfar PISA er ekkert um lengingu skólaársins. Maður hlýtur að spyrja sig hvort rangfærslurnar og upplýsingaóreiðan, sem haldið var uppi þegar málið kom fyrst fram, hafi orðið til þess að bakkað var með það. Ef svo er, þá hefur kjarabarátta kennara bitnað á börnunum, ekki er lengur hægt að ræða málin út frá staðreyndum, og íslensk börn fá ekki skólaár sem er raunverulega sambærilegt, í lengd, kennsludögum og tíma, við það sem jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum njóta.

Heimili og skóli, landssamtök foreldra, skora á Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra að gefast ekki upp fyrir kjarabaráttu kennara, heldur endurvekja áform um að lengja og styrkja skólaárið, íslenskum börnum til aukins árangurs.

Börnin okkar eiga það skilið að ákvarðanir um skólann þeirra byggi á staðreyndum, og að hagsmunir þeirra séu settir í fyrsta sæti.

Höfundur er faðir þriggja barna í leik- og grunnskóla og formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra.

Heimildir:

Lög um grunnskóla.

Frétt af vef mennta og barnamálaráðuneytisins „Nánari skilgreining á skóladögum nemenda”.

Frétt á vef umboðsmanni barna.

Frétt á vef mennta og barnamálaráðuneytisins.

Frétt af vef Kennarasambandsins frá 28.03.2026.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×