Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Sindri Sverrisson skrifar 7. október 2026 07:05 Tilfinningarnar streymdu hjá Lionel Messi í nótt og liðsfélagar hans nutu stundarinnar með honum. Getty/Marcelo Endelli Það var risastór stund í knattspyrnusögunni í nótt þegar sjálfur Lionel Messi lék kveðjuleik sinn fyrir Argentínu og að sjálfsögðu skoraði hann, í 3-0 sigri gegn Benín í vináttulandsleik.
Leikurinn fór fram í Buenos Aires og voru að sjálfsögðu miklar tilfinningar í spilinu enda Messi algjör guð í augum heimamanna og raunar einnig í augum mótherja sinna. Sjálfur var Messi byrjaður að fella tár í liðsrútunni á leiðinni á völlinn. View this post on Instagram A post shared by Fabrizio Romano (@fabriziorom) Hinn 39 ára gamli Messi skoraði lokamark Argentínu úr vítaspyrnu, eftir að hafa lagt upp mörk fyrir Nicolás Otamendi og Nico Paz. Hann náði þar með að skora 126 mörk í 208 landsleikjum fyrir Argentínu auk þess að leggja upp mörg til viðbótar. Þetta var ekki bara síðasti landsleikur Messi heldur líka fyrsti og eini landsleikur hans eftir að hann missti pabba sinn, Jorge, 68 ára gamlan eftir langvarandi veikindi. Eftir leikinn féllu fjölmörg tár hjá liðsfélögum Messi og öðrum viðstöddum þegar Messi flutti nærri tíu mínútna kveðjuræðu. „Það eru svo margar tilfinningar sem bærast um í mér akkúrat núna. Ég er örugglega að gleyma fullt af hlutum sem ég myndi vilja segja því þetta er mjög erfið stund fyrir mig. Fyrsta manneskjan sem kemur upp í huga mér er pabbi minn,“ sagði Messi. „Ég kveð þakklátur, stoltur og sáttur. Takk fyrir allt saman,“ sagði Messi sem lék allar 90 mínúturnar á uppseldum 85.000 manna Monumental-leikvanginum. Lionel Messi gat kvatt landsliðið stoltur og ánægður með ferilinn.Getty/Marcelo Endelli Messi lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Argentínu árið 2005 þegar hann kom inná sem varamaður á 63. mínútu í 2-1 sigri á Ungverjalandi í vináttulandsleik. Hann fékk reyndar rauða spjaldið innan við mínútu síðar fyrir að sveifla handleggnum í bakvörð Ungverja, Vilmos Vanczak. Hápunktur landsliðsferils Messis kom árið 2022 er Argentína varð heimsmeistari í Katar. Litlu mátti muna í sumar að Messi og félagar hefðu varið titilinn en þeir töpuðu fyrir Spáni í úrslitaleik í Bandaríkjunum. Messi náði einnig þeim áfanga að vinna Copa America í tvígang með argentínska landsliðinu. 🇦🇷 | La gran despedida final de Lionel Messi y el adiós a la selección argentina. "Hoy me toca vivir el día más triste de mi carrera: despedirme de la selección. Ahora me toca acompañar. Los quiero, agradezco a Dios y estoy orgulloso de ser Argentino." https://t.co/NhZbyH4uTb— Mia 🍋 (@Mialygosa) October 7, 2026 „Það eina sem ég á eftir að gera er að þakka þessari treyju,“ hélt Messi áfram. „Í 20 ár, jafnvel á verstu stundunum, hætti ég aldrei að berjast, sækja fram, gefa allt sem ég átti og vilja vera hér. Það á eftir að vera mjög sárt að koma ekki hingað lengur og vera ekki lengur með argentínska landsliðinu. Ef ég fengi að ráða myndi ég vilja vera hér alla ævi, því að spila fyrir Argentínu er það fallegasta sem til er. Ég held að ég tali meira en nokkru sinni fyrr í dag einfaldlega vegna þess að ég vil ekki að þessi stund taki enda. En ég held að sá tími sé kominn að ég leggi skóna á hilluna. Síðasta heimsmeistaramót tók mikið á okkur eftir allt sem við gengum í gegnum. Við komumst í úrslitaleikinn með rétt nóg eftir á tankinum, en við börðumst allt til enda, eins og við gerðum alltaf. Við vorum mjög nálægt því að vinna mótið aftur og þrátt fyrir allt sem sagt var um okkur gerðist ekkert óeðlilegt. Leikurinn gegn Englandi tók mikið á okkur því við gáfum algjörlega allt. Árið 2022 áttum við okkur þann draum að uppfylla ekki aðeins minn draum heldur draum heillar þjóðar: að verða heimsmeistarar á ný. Og okkur tókst það,“ sagði Messi. Hann er næstmarkahæstur í sögu HM, á eftir Kylian Mbappé, með 21 mark og næstmarkahæsti landsliðsmaður sögunnar á eftir Cristiano Ronaldo sem skorað hefur 146 mörk fyrir Portúgal. Félagsliðaferli Messi er ekki lokið en hann er samningsbundinn Inter Miami til loka ársins 2028.
Fótbolti Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Barcelona – Aston Villa | Ósigraðir Villa-menn á Nývangi Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Sjá meira