Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Kjartan Kjartansson skrifar 7. október 2026 07:46 Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Vísir/EPA Ný aðildarríki að Evrópusambandinu gætu verið svipt atkvæðarétti eða fjárveitingum ef þau brjóta gegn grunngildum sambandsins á fimmtán ára reynslutímabili ef tillögur framkvæmdastjórnar þess verða að veruleika. Sambandið vill koma í veg fyrir að nýr Viktor Orbán komi fram sem verði þrándur í götu þess.
Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, kynnti tillögurnar í gær. Í viðtali við fjölmiðla sagði hún að sambandið yrði að hafa aðrar og einfaldari leiðir en sjöundu grein sáttmálans um Evrópusambandið til þess að bregðast við ef ný aðildarríki ganga gegn réttarríkinu, lýðræðinu eða grunngildum sambandsins. „Ekki meiri Viktor Orbán,“ sagði Kos og vísaði til fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands sem var öðrum aðildarríkjum erfiður ljár í þúfu um árabil. Sjöunda grein sáttmálans gefur aðildarríkjum heimild til þess að svipta annað ríki atkvæðarétti fyrir alvarleg og langvarandi brot á lýðræðislegum gildum. Ákvæðinu hefur hins vegar aldrei verið beitt. Evrópusambandið hafði sérstaklega áhyggjur af hnignun lýðræðis og réttarríkisins í Póllandi og Ungverjalandi en ríkin tvö gátu þá notað neitunarvald sitt til þess að vernda hvort annað. Tillögur framkvæmdastjórnarinnar fela í sér að auðveldara yrði að svipta ríki atkvæðarétti og beita þau öðrum þvingunaraðgerðum. Þetta væri hægt á fimmtán ára reynslutímabili nýrra aðildarríkja. „Þetta er mikil nýbreytni og mikilvæg skilaboð til borgara í löndum sem hafa efasemdir um stækkun um að við séum með öflugt regluverk jafnvel ef eitthvað fer úrskeiðis eftir stækkun,“ hefur breska blaðið The Guardian eftir Kos. Nokkur ríki í austanverðri Evrópu sækjast nú eftir aðild að Evrópusambandinu. Svartfjallaland, Albanía, Moldóva og Úkraína gætu öll gengið í sambandið á næstu árum. Öll aðildarríki sambandsins þurfa hins vegar að samþykkja að ný ríki séu tekin inn. Frakkar og Tékkar eru sagðir sérstaklega neikvæðir í garð nýrra aðildarríkja.
Evrópusambandið Ungverjaland Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira