Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sindri Sverrisson skrifar 11. október 2026 08:01 Ívar Orri Kristjánsson dæmdi leik Samsunspor og Dynamo Kiev í Sambandsdeildinni fyrir tæpu ári. Hægt var að notast við myndbandsdómgæslu í þeim leik en hún er ekki til staðar í íslenska boltanum. Getty/Veysel Altun Þrátt fyrir mikinn fjölda landsleikja karla í Evrópu í nýafstaðinni landsleikjatörn voru engir íslenskir dómarar á ferðinni að þessu sinni, hvorki hjá A- né U21-landsliðum.
Þriggja vikna hléi í Bestu deild karla lauk nú um helgina. Í þessu hléi voru ekki bara langflestir leikmanna deildarinnar að bíða eftir leikjum því dómararnir hafa sömuleiðis allir þurft að bíða verkefnalausir. „Þetta er auðvitað svekkjandi,“ segir Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ, í samtali við Vísi. Átti von á verkefni „Ég er ekki sáttur. Við áttum alveg von á því að fá verkefni, hið minnsta U21-verkefni. Það kom ekki og þannig er það bara. Þetta er auðvitað mikið af leikjum en það er líka mikið af dómurum og mikil samkeppni. Það er mjög svekkjandi að við skyldum ekki hafa fengið verkefni en það er lítið sem við getum gert við því annað en að halda áfram. Ég á von á því að við fáum spennandi verkefni seinna á þessu ári,“ segir Þóroddur. Þóroddur Hjaltalín er sjálfur fyrrverandi dómari en starfar nú sem dómarastjóri hjá KSÍ.Vísir/Einar Ef horft er til síðustu tólf mánaða þá dæmdu íslenskir dómarar landsleiki í lok mars sem og í október og nóvember í fyrra, í undankeppnum EM U21- og U19-landsliða karla. Þá hafa þeir í sumar einnig dæmt í undankeppnum Meistaradeildar karla og kvenna og Sambandsdeildarinnar og má vænta verkefnis þar nú í haust. Íslenska VAR-leysið eigi ekki að bitna á dómurum En bitnar það á íslenskum dómurum að það skuli ekki vera VAR-dómgæsla í Bestu deildinni? „Nei, ég held að það sé ekki að hafa áhrif á okkur ennþá. Það eru þau svör sem við fáum [frá UEFA]. Dómararnir okkar eru allir með þjálfun til að dæma VAR-leiki,“ segir Þóroddur og bendir á að Ívar Orri Kristjánsson hafi dæmt leik Samsunspor og Dynamo Kiev í Sambandsdeildinni fyrir tæpu ári. Í þeim leik var íslenskur dómarakvartett en myndbandsdómararnir komu hins vegar frá Austurríki. „Ég held að þessi staða [ekkert VAR í íslenska boltanum] hjálpi okkur vissulega ekki,“ segir Þóroddur.
Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Barcelona – Aston Villa | Ósigraðir Villa-menn á Nývangi Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Sjá meira