Benedikt birtir mynd frá slysstað Aron Guðmundsson skrifar 12. október 2026 07:31 Benedikt liggur hér eftir á golfvellinum og sjúkralið hlúir að honum. Hann hefur nú lagt mikið á sig til þess að geta snúið aftur inn á handboltavöllinn. Mynd: Benedikt Gunnar Óskarsson á Instagram Handboltakappinn Benedikt Gunnar Óskarsson sneri aftur á handboltavöllinn á föstudaginn eftir að hafa lent í slysi og í kjölfarið misst mátt í hægri hendi.
Benedikt kom við sögu í tapi TTH Holstebro gegn Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni og markaði það endurkomu Benedikts á völlinn eftir slysið. Þessi öflugi leikmaður gekk í raðir Holstebro frá norska meistaraliðinu Kolstad milli tímabila og á meðan hann var í sumarfríi hér á landi skellti hann sér í golf. Sú ferð dró dilk á eftir sér því þar fékk Benedikt golfkúlu í hausinn og missti strax máttinn í hægri hendi. Benedikt tjáði sig um slysið í viðtali við Vísi sem má sjá hér: Benedikt var með höfuðhlíf í leiknum gegn Ribe-Esbjerg á föstudaginn og í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þakkar hann fyrir stuðninginn og birtir um leið mynd af því þegar sjúkralið var að hlúa að honum á golfvellinum í sumar. Benedikt var alls fjóra daga á sjúkrahúsi eftir slysið og hefur hægt og bítandi verið að vinna að því að geta snúið aftur inn á völlinn. View this post on Instagram A post shared by Benedikt Gunnar Oskarsson (@bennotelli45) Hann segir að óhappið á golfvellinum sýni hversu stutt er oft á milli í lífinu. „Jú, þetta lætur mann vera, ég veit það ekki, meira þakklátan þegar maður getur gert allt,“ sagði Benedikt í samtali við Vísi á sínum tíma. „Ég held að þetta muni bara hjálpa manni þegar þetta lagast allt og maður er líklega bara þakklátur fyrir allt sem maður getur gert.“
Danski handboltinn Golf Handbolti Íslendingar erlendis Danmörk Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Enski boltinn Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Fótbolti Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira