Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2026 08:12 Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Rumen Radev, forsætisráðherra Búlgaríu. Vísir/AP Drónaárásir voru gerðar á tvö skip á Svartahafinu við strendur Búlgaríu í gærkvöldi. Frá þessu greinir forsætisráðherra Búlgaríu á samfélagsmiðlum en ekki er vitað hver er á bak við árásirnar. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir óásættanlegt að Svartahafið sé orðið að enn einum vígvellinum í stríðinu.
Ráðist var á skipin rúmlega þrjátíu kílómetrum fyrir utan strendur Búlgaríu um klukkan hálf tíu í gærkvöldi samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðherra Búlgara, Rumen Radev. Um er að ræða annað atvikið á innan við viku á þessu svæði en annað skipanna sem ráðist var á í gær sökk og segir í frétt Sky News að einum úr áhöfninni hafi verið bjargað. Ekki er greint frá afdrifum annarra um borð. Mun kalla sendiherrann á sinn fund Skipið sem sökk var í eigu Tyrkja en sigldi undir fána Sankti Vinsent og Grenadínu. Hitt skipið sem ráðist var á er úkraínska skipið Chelsea 3 sem siglir undir maltneskum fána. „Þetta er algjörlega óásættanlegt, önnur árás í nálægð við búlgarska landhelgi,“ er haft eftir Radev sem mun ræða við Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, um málið. Óljóst er hver stendur að baki árásunum en Radev segir að Rússar hafi gagn af þeim og bætti við að hann myndi kalla rússneska sendiherrann í Búlgaríu á sinn fund. Búlgaría á hvorki landamæri að Úkraínu né Rússlandi en er í NATO og er staðsett við Svartahafið þar sem bæði löndin eru með stórar hafnir. Óásættanlegt að Svartahafið sé orðið að vígvelli Árásirnar auka á áhyggjur af frekari árásum Rússa á yfirráðasvæði NATO. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, fordæmdi árásirnar í færslu á samfélagsmiðlum. „Svartahafið er orðið að enn einum vígvellinum í stríði Rússa í Úkraínu. Þetta er óásættanlegt,“ skrifar von der Leyen. „Þetta stefndi lífi áhafnanna í mikla hættu og ógnar örygginu á Svartahafi. Við stöndum með Búlgaríu og þökkum björgunaraðilum fyrir skjót viðbrögð. Þeir sem bera ábyrgð skulu verða látnir svara til saka.“
Innrás Rússa í Úkraínu Búlgaría Evrópusambandið NATO Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira