Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Eiður Þór Árnason skrifar 4. nóvember 2026 07:40 Donald Trump Bandaríkjaforseti þurfti að þola mikinn ósigur. Hann segir niðurstöðuna alls ekki vera sér að kenna. AP/Alex Brandon Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast í gær. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri.
Forsetinn er dyggur áhorfandi bandarísku íhaldsstöðvarinnar Fox News og er greinilegt að hann fylgdist náið með umfjöllun þeirra um það leyti sem kjörstöðum var lokað. „Er að horfa á forniðurstöðurnar kosninganna á FoxNews, en ég þoli ekki rödd Jessicu Tarlov — HEIMSK EINS OG STEINN, en það er röddin sem fer í mig. Verð að fara eitthvert annað þangað til þessi LÚSER er farin úr loftinu — ég kem aftur síðar!“ skrifaði Trump á Truth Social klukkan 22:25. Tarlov starfar fyrir Demókrataflokkinn en er meðal reglulegra þáttastjórnenda í þættinum The Five á Fox News. „Skoðanakönnun FoxNews, alltaf sú versta, spyr svo móðgandi spurninga. Hver einasta spurning er rógsherferð og hvert einasta svar er „KJAFTÆÐI!“ Þetta hefur viðgengist árum saman,“ skrifaði Trump síðar. Þá sagði hann áhorfstölur sjónvarpsstöðvarinnar hafa hrunið vegna þess að hún eyddi of miklum tíma í umfjöllun um Demókrata sem væru með ranghugmyndir og Trump á heilanum. „Engin furða að áhorfstölur FoxNews séu að hrynja, og þær eiga eftir að fara mun neðar. Þær hafa hrapað, ekki mín vegna, heldur vegna þess að þeir eru Á MÓTI mér! Þetta gerðist einu sinni áður og Fox hrundi næstum. Það er að gerast aftur!“ Á einhverjum tímapunkti virtist Trump vera að senda skilaboð á þáttastjórnendur The Five á meðan þeir voru í beinni útsendingu. Hann hringdi síðar inn í þáttinn og mátti þá heyra aðeins mildari tón í forsetanum. „Þetta kom mér svolítið á óvart. Ég hélt að þeim myndi ganga betur.“ Margir þáttastjórnendur Fox News hafa löngum verið yfirlýstir stuðningsmenn og jafnvel nánir bandamenn. Þá hefur sjónvarpsfólk þaðan ratað í ríkisstjórn hans. Ekki honum að kenna Í viðtali við The New York Times sagðist Trump vera til í að vinna með Demókrötum í þinginu og sagði ástæðuna fyrir tapinu vera að hann hafi ekki sjálfur verið á kjörseðlinum. Þá sagði hann ákvörðun sína um að hefja stríð í Íran hafa verið „mjög gáfulega ákvörðun“ en stríðið hefur notið mikilla óvinsælda meðal bandarísks almennings þvert á flokka. Vinsældir Trumps hafa mælst litlar í könnunum um langt skeið og farið þverrandi. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira